Ásatrú
Hvað
er ásatrú?
Algengar
spurningar um félagið og ásatrú
Æsir,
ásynjur og aðrar máttugar verur
Lesefni um ásatrú
Forsíða
Ásatrú
eða heiðinn siður byggir á umburðarlyndi,
heiðarleika, drengskap og virðingu fyrir náttúrunni
og öllu lífi. Eitt megininntak siðarins er að
hver maður sé ábyrgur fyrir sjálfum sér
og gerðum sínum.
Ì Hávamálum er einkum að finna siðareglur
Ásatrúarmanna. Heimsmynd ásatrúarmanna
er að finna í Völuspá. Þar er sköpunarsögunni
lýst, þróun heimsins, endalokum hans og nýju
upphafi.
Ì trúarlegum efnum hafa ásatrúarmenn
aðallega hliðsjón af hinum fornu Eddum.
Margir ásatrúarmenn líta frekar á ásatrú
sem sið eða lífsstíl heldur en bein trúarbrögð.
Að
kalla siðinn ásatrú er reyndar villandi þar
sem átrúnaður er ekki einungis bundinn við
æsi, heldur hvaða goð eða vættir sem er
innan norrænnar goðafræði og þjóðtrúar,
svo sem landvættir, álfa, dísir, vani, jötna,
dverga og aðrar máttugar verur eða forfeður.
Ásatrúarmenn iðka trú sína á
hvern þann hátt sem hverjum og einum hentar svo framalega
sem iðkunin brýtur ekki á bága við
landslög.

|