Félagið
Alsherjargoðar frá upphafi
Félagsaðild
Lög félagsins
Saga Ásatrúarfélagsins
Stjórn og stjórnskipulag
Forsíða
Ásatrúarfélagið
var formlega stofnað sumardaginn fyrsta árið 1972
og fékk viðurkenningu sem löggilt trúfélag
ári síðar, þann 16. maí 1973.
Tilgangur félagsins
er að starfa að eflingu ásatrúar og annast
þá trúarlegu þjónustu sem því
er samfara. Þessu markmiði hyggst félagið ná
með fræðslu- og félagsstarfi en ekki trúboði.
Ásatrúarfélagið vill hefja til vegs og
virðingar fornan sið og forn menningarverðmæti.
Það er einnig vilji félagsins að auka skilning
og áhuga á þjóðtrú og gömlum
hefðum. Þetta viljum við gera án þess
að gera lítið úr öðrum trúarsiðum,
gömlum eða nýjum, eða menningu annarra þjóða.
Ofstæki eða hatur í garð annarra getur aldrei
samrýmst stefnu félagsins.
Ásatrúarfélagið er nú sjötta
stærsta trúfélagið á Íslandi
og það stærsta sem byggir ekki á kristnum
grunni. Nú eru skráðir á annað þúsund
einstaklingar í félagið.
Samkvæmt lögum
um trúfélög ber Ásatrúarfélaginu
að inna af hendi athafnir, svo sem hjónavígslur
og útfarir. Athafnir þessar eru framkvæmdar af
allsherjargoða og þeim goðum sem hafa vígsluréttindi.
Ásatrúarmenn sameinast um heitið: „Hefjum
til vegs fornan sið og forn menningarverðmæti.“
Ásatrúarfélagið
Síðumúli 15,
108 Reykjavík
Sími: 561- 8633

|