Hvernig skráir maður sig í Ásatrúarfélagið?

Ásatrúarfélagið er löggilt trúfélag á Íslandi og hefur það að markmiði að hefja til vegs og virðingar fornan sið og forn menningarverðmæti. Félagið er opið öllum þeim er áhugasamir eru um ýmiskonar þjóðtrú, gamlar hefðir og menningarverðmæti..

Íslenskir ríkisborgarar 16 ára og eldri, sem og útlendingar með fasta búsetu á Íslandi sem tilbúnir eru að fylgja reglum félagsins, sbr. lög og starfsreglur þess, geta skráð sig í félagið. Þeir sem ekki hafa náð 16 ára aldri þurfa þó samþykki foreldra fyrir félagsaðild. Allir félagar eru virtir að jöfnu, hafa kosningarétt og geta gefið kost á sér í trúnaðarstöður innan félagsins. Samkvæmt íslenskum lögum er aðeins leyfilegt að vera skráður í eitt trúfélag.

Rétt er að geta þess, að Ásatrúarfélagið veitir félögum sínum nánast alla þá þjónustu, sem Þjóðkirkjan hefur upp á að bjóða. Umfram ákvæði áðurnefndra félagslaga, gerir Ásatrúarfélagið sömu kröfur til félagsmanna sinna og Þjóðkirkjan: Engar!

Þjóðskrá, Borgartúni 24, 150 Reykjavík sér um skráningu í trúfélög. Þar er opið virka daga kl. 8:30 - 16:00. Á slóðinni http://www.thjodskra.is/ (Eyðublöð/Trúfélög), er hægt að sækja, útfylla og prenta út trúskiptaeyðublöð. Munið að undirrita! Eyðublöðin má setja í póst eða senda sem símbréf til Þjóðskrár, en bréfsíminn er 569 2949. Nánari upplýsingar eru veittar í síma Þjóðskrár, 569 2900. Þetta er sáraeinfalt mál!

Hér er einnig hægt að sækja og prenta út trúskiptaeyðublað: Sækja eyðublað

Á sýsluskrifstofum er einnig hægt að nálgast trúskiptaeyðublöð.
Velkomið er líka að snúa sér til skrifstofu Ásatrúarfélagsins, Síðumúla 15, eða hvaða goða sem er. Skrifstofan er opin á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 14-16 og opið hús er á laugardögum kl. 14-16.

Til baka