Eldri fréttir og aðrar upplýsingar:
Opinn lögréttufundur laugardaginn 4. september kl. 15:00 í Síðumúla 15.
Umræðuefni: Vetrarstarfið.
Ungir heiðingjar blása til Sveinbjarnarblóts
Sveinbjarnarblót verður haldið laugardaginn 3. júlí á tjaldsvæðinu Hjallaflötum í
Heiðmörk. Þar er frábær grillaðstaða og salerni, en því miður er ekkert vatnsflæði,
svo við minnum fólk á að taka með sér vatnsbrúsa.
Við ætlum að hittast á Hjallaflötum um kl. 17:00 og stendur blótið fram á næsta
dag þar sem gert er ráð fyrir að tjalda yfir nótt. Munum við byrja á að grilla saman og
nærast og kveikja svo í varðeldi þar sem siðfestuathöfn í umsjón Jónínu K. Berg Þórsnesgoða, fylgir á eftir.
Eyvindur P. Eiríksson Vestfirðingagoði blótar í Skatnavör í Arnardal fimmtudaginn 15. júlí kl. 18:00.
Allir velkomnir.
Eyvindur P. Eiriksson - sími 868-7724
Sumarblót verður haldið þann 26. júní næstkomandi að Skálanesi í
Seyðisfirði og hefst kl. 15.00 við Skálanesbjarg.
Að athöfn lokinni mun nýtt sánabað Skálanesbónda veða tekið í notkun með
sérstökum gjörningi Freysgoða þar sem lýst verður griðum og sáttum.
Skálanesbóndi leggur til grill, húsnæði og aðstöðu alla og geta gestir tekið
með sér það sem þeir helst kjósa til matar.
Blóttollur er kr. 1000 og eru allir velkomnir.
Allar nánari upplýsingar veitir Freysgoði í síma 861-2164
Þingblót
Ásatrúarfélagsins
2010 verður haldið á Þingvöllum á þórsdegi í tíundu viku sumars
(24. júní). Við hittumst kl. 18:00 í Almannagjá og blásið
verður til blóts um kl. 18:30.
Allsherjargoði helgar blótið og goðar taka til máls. Þing verður sett.
Þegar lögsögumaður hefur sagt lögin frestar hann þingi til hausts.
Á dagskrá er siðfestuathöfn, en síðan göngum við til tjalds og grillum,
etum, syngjum og verum glöð. Skemmtiatriði verða í boði.
Blóttollur er að þessu sinni enginn, því nú stillum við upp stóru
grilli fyrir þann mat, sem hver og einn hefur með sér að heiman. Þó
leggur félagið til gosdrykki, pylsur (fyrir börnin), kartöflusalat og brauðmeti.
Góða skemmtun!
Gróður- og grillblót fjölskyldunnar við Skóg ræktar
stöðina á Mógilsá á Kjalarnesi.
Laugardaginn 22. maí kl. 14:00 verður haldið gróðurblót við Skógræktarstöðina í
landi Mógilsár.
Safnast verður saman í skjólsælum lundi við húsið og verður leiðin
vel merkt.
• Jóhanna Harðardóttir, kjalnesingagoði, helgar blótið og síðan verður grillað,
spjallað og skemmt sér fram eftir degi í fögru umhverfi. Bakað verður skógarbrauð
og leitað að földum eggjum í skóginum.
• Allir eru velkomir.
• Munið að taka með ykkur eitthvað á grillið og klæða ykkur eftir veðri þótt alltaf
sé skjól í skóginum.
• Sauna-kofinn er opinn fyrir þá sem vilja, svo og aðgangur að hreinlætisaðstöðu
hússins.
Ásatrúarmenn fagna sumri að venju með blóti á sumardaginn
fyrsta, 22. apríl.
Blótið hefst kl. 15 á lóðinni okkar í Öskjuhlíð, austan nýbyggingar Háskólans í Reykjavík.
Allsherjargoði helgar blótið og goðar drekka til landvætta að venju. Þá
verður vígður bautasteinn til heiðurs stofnanda og fyrsta allsherjargoða
Ásatrúarfélagsins, Sveinbirni heitnum Beinteinssyni.
Að því loknu flytjum við okkur yfir í félagsheimilið okkar að Síðumúla
15, þar sem börnin fá sumargjafir og við skemmtum okkur saman.
Boðið verður upp á grillaðar pylsur að hætti ásagrills og fleira góðgæti, sem við skolum niður með mjólk, gosdrykkjum og kaffi.
Blóttollur er enginn og börn í fylgd foreldra, 12 ára og yngri, fá
sumargjafir.
Tóti trúður er væntanlegur eins og undanfarin ár. Að þessu sinni
hyggst hann aðstoða börnin við þeirra eigin skemmtiatriði.
Góða skemmtun!
Blót verður haldið á sumardaginn fyrsta 22. apríl við Blöndalsbúð í Einarsstaðaskógi á Fljótsdalshéraði. Blöndalsbúð verður opin frá kl. 16:00 og verður kaffi í boði en fólk getur tekið með sér það sem því hentar af meðlæti eða öðrum kosti. Áætlað að blót hefjist um kl. 20:00.
Allar nánari upplýsingar fást hjá Baldri Freysgoða í síma 861-2164
Leshringur
Ásatrúarfélagsins:
Tryggvi V. Líndal stendur fyrir leshring um Snorra-Eddu
í opna húsi félagsins, kl. 14–15, á
6 vikna fresti.
Fyrirlestrar
í Síðumúlanum - Gaman verður
að fylgjast með í vetur fróðlegum erindum
er varða okkar trúarsið og menningararf og viljum
við hvetja sem flesta til að koma og taka með sér
gesti eftirfarandi laugardaga, sem og aðra laugardaga á
opið hús í Síðumúla 15, milli
klukkan 14:00 og 16:00.
Fyrirlestrarnir hefjast kl 14:00.
10. apríl
- Forn lögmál hlutfalla í hofbyggingum
Björn Kristjánsson húsasmíðameistari
og Magnús Jensson arkitekt fjalla um stærðir,
hlutföll og forn lögmál varðandi arkitektúr,
form og rými hofa og bygginga.
Heimsmynd ásatrúarinnar.
Þann 14 mars kl. 16.00 að Ekkjufelli í Fellum
Fljótsdalshéraði, mun Hilmar Örn Hilmarsson
allsherjargoði fjalla um heimsmynd ásatrúarinnar
og helstu þætti innan hennar og á hverju hún
byggist.
Allir velkomnir.
13. mars -
Kristilegt málfar heiðinna nútímamanna
- og öfugt
Bjarki M. Karlsson málfræðingur flytur erindi
um ýmislegt í nútímamáli er
rætur á í Kristnum sið, annars vegar -
og í Heiðnum sið hins vegar, máltæki,
orðtök og slíkt.
13. febrúar
- Heimsmynd ásatrúarinnar
Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði fjallar um heimsmynd
ásatrúarinnar og helstu þætti innan
hennar og á hverju hún byggist.
Siðfestufræðsla
á vegum Ásatrúarfélagsins - Jóhanna
Harðardóttir, Kjalnesingagoði heldur áfram
með siðfræðslu í Síðumúlanum.
Þetta er þriðji tíminn og hefst hann kl
12:30 laugardaginn 30. jan. Búast má við að
hann standi til klukkan 14:00. Þeir sem mæta eru minntir
á að koma með Hávamálin með sér
(þeir sem eiga þau). Hafa
má samband við Jóhönnu í síma
566 7326 og 699 3250. .
Allir eru velkomnir.
Þorrablót
Ásatrúarfélagsins 2010 - Senn
líður að þorra og ekki er seinna vænna
en að blóta hann með stæl strax á
bóndadag, sem er föstudagurinn 22. janúar.
Þorrablót Ásatrúarfélagsins
verður haldið á bóndadag í húsi
Ferða félags Íslands að Mörkinni 6
eins og undanfarin ár. Þar komum við saman og
snæðum hefðbundinn þorramat, njótum
skemmtiatriða og samvista við annað heiðið
fólk fram eftir kvöldi.
Húsið opnar kl. 19:00 og blóttollur er kr. 4.400,-
fyrir manninn, en börn 12 ára og yngri fá frítt.
Þeir sem vilja taka þátt, vinsamlegast greiði
blóttollinn inn á reikning félagsins (nr.
0101-26-011444, kt. 680374-0159) ekki síðar en fimmtudaginn
21. janúar til að staðfesta fjölda gesta.
Takmörk eru fyrir hve margir geta bæst í hópinn
við innganginn. Félagsfólk er hvatt til að
fjölmenna og taka með sér gesti.
Allir eru velkomnir.
Góða skemmtun.
23. janúar
- Rúnanotkun og rúnagerð
Bára Halldórsdóttir þjóðfræðinemi
mun þá verða með fræðslu um rúnir
og notkun þeirra og kennslu í að útbúa
sitt egið rúnasett úr leir. Þetta höfðar
ekki hvað síst til yngri kynslóðarinnar.
Barnasamveran
verður á sunnudögum í vetur kl: 14:00 -
16:00.
Meiginmarkmiðið er að leyfa börnum félagsmanna
að hittast, leika sér saman, lesa, lita, teikna, hlusta
á hljóðbækur og fl. sem þróast
með tímanum, einnig verður opin umræða
fyrir þau eldri um trúnna.
Foreldrar látið endilega sjá ykkur með börnin.
Getið einnig sent mér fyrirspurnir á: potiputtur@hotmail.com
Ebba Unnsteins
Fréttir
frá árinu 2009:
Ungliðastarf
Þeir sem áhuga hafa á að endurvekja ungliðastarfið
setji sig í samband við Ebbu Unnsteinsdóttur:
potiputtur@hotmail.com
Vetrarsólstöðublót
í Neskaupstað. Baldur Pálsson Freysgoði
stendur fyrir vetrarsólstöðublóti næstkomandi
sunnudag, 20 des. kl. 16.00 við snjóflóðavarnargarðana
í Neskaupsstað.
Jólablót
Ásatrúarfélagsins 2009
Jólablótið okkar verður haldið á
sólstöðum, mánudaginn 21. desember, og
hefst með athöfn kl. 18 á lóðinni okkar
í Öskjuhlíðinni. Síðan höldum
við áfram með ljósahátíð
barnanna og sameiginlegt borðhald
með skemmtiatriðum í sal Ferðafélagsins
í Mörkinni 6, eins og við höfum gert undanfarin
ár.
Húsið verður opnað kl.19:30. Blóttollur
í Mörkinni er kr. 3.500 fyrir manninn, en börn
12 ára og yngri í fylgd foreldra fá frítt.
Blóttollinn þarf að greiða inn á reikning
félagsins (nr. 0101-26-011444, kt. 680374-0159) fyrir 20.
desember svo hægt sé að fastsetja fjölda
gesta. Eftir það hækkar gjaldið í kr.
4.000 og takmörk eru fyrir hvað margir geta bæst
í hópinn við innganginn. Félagsfólk
er hvatt til að fjölmenna og taka með sér
gesti. Allir eru velkomnir, jafnt félagsfólk sem
utanfélagsfólk.
Góða skemmtun og gleðilega hátíð.
Vetrarsólstöðublót
verður næstkomandi mánudag, 21 des. kl. 20.00
við Ferjuhöfnina austan Lagarfljótsbrúar
- Baldur Pálsson Freysgoði.
Landvættablót
verða haldin samtímis í öllum landsfjórðungum
þann 1. desember.
Öll blótin hefjast stundvíslega kl. 18:00 en
safnast verður saman hálftíma fyrr.
Í Austfirðingafjórðungi
mun Baldur Pálsson Freysgoði standa fyrir vættablóti
við Ferjuhöfnina austan Lagarfljótsbrúar
og hefst kl. 18.00.
Jóhanna Harðardóttir,
Kjalnesingagoði mun standa fyrir blóti við Garðskagavita
og á eftir verður safnast saman á "Flösinni"
sem er safn og kaffishús við vitann.
Hilmar Örn Hilmarsson
allsherjargoði blótar á Þingvöllum
í Almannagjá. Það verður safnast saman
og gengið frá Valhallarreitnum kl. 17:45.
Í Vestlendingafjórðungi
mun Jónína K. Berg Þórsnessgoði
standa fyrir blóti í Hafnarskógi undir Hafnafjalli.
Í Norðlendingafjórðungi
mun Árni Einarsson hofgoði halda blót við
sólúrið í Kjarnaskógi við
Akureyri.
Nánari upplýsingar
verða einnig veittar í síma félagsins
561 8633 og hjá goðum félagsins.
Fyrirlestur á opnu
húsi: Laugardaginn 14. nóvember kl 14:15,
mun Guðrún Kristín Magnúsdóttir
/ Goðrún Dimmblá flytja erindi í tilefni
þess að fyrr á árinu komu út eftir
hana í vefútgáfu „Óðsmál
in fornu“ og mun hún fjalla um þann mikla fróðleik
og vísindi er felast í heiðnum sið.
Barnasamveran
hefur göngu sína sunnudaginn 8.nóvember
í Síðumúla 15. kl 14-16:00.
Foreldrar látið
endilega sjá ykkur með börnin og forvitnist um
starfið hjá mér næstkomandi sunnudag.
Getið einnig sent mér fyrirspurnir á: potiputtur@hotmail.com
Barnasamveran verður
á sunnudögum í vetur á þessum
tíma.
Meiginmarkmiðið er að leyfa börnum félagsmanna
að hittast, leika saman, lestur, lita, teikna, hlusta á
hljóðbækur og fl. sem þróast með
tímanum, einnig opin umræða fyrir þau eldri
um trúnna :)
Bíð spennt
eftir ykkur næstkomandi sunnudag með hlýjum móttökum.
Bestu kveðjur
Ebba Unnsteins
Allsherjarþing
Ásatrúarfélagsins verður haldið
á Hótel Sögu kl. 14:00, laugardaginn 31. október
nk.,
í sal Harvard (2. hæð, inng. að norðanverðu).
Dagskrá:
1. Skýrsla lögréttu, borin upp til umræðu
og staðfestingar
2. Reikningar lagðir fram til umræðu og til staðfestingar
3. Lagabreytingar og aðrar tillögur
4. Kosið í lögréttu
5. Kosning skoðunarmanna reikninga, nefnda og í aðrar
trúnaðarstöður
6. Endurkjör goða
7. Staða hofbyggingarinnar
8. Önnur mál
Veturnáttablót
Ásatrúarfélgsins fyrsta vetrardag 24. október
Klukkan 17:30 munu goðar félagsins standa
fyrir blóti og fagna komu vetrar á lóðinni
okkar í Öskjuhlíðinni. Blót þetta
er helgað Óðni, uppskeru haustsins og öllum
þeim lifandi verum sem hverfa til hinnar eilífu hringrásar.
(Smella hér til að
sjá staðsetningu lóðarinnar)
Síðar um
kvöldið verður haldin veisla í Mörkinni
6 í húsi Ferðafélagsins.
• Húsið verður opnað kl. 18:30
• Borðhald
• Skemmtiatriði og söngur
Blóttollur verður
3000 kr. fyrir matinn en börn í fylgd með foreldrum
fá frítt.
Vinsamlega greiðið tímanlega (minnst þremur
dögum fyrir blót, eða látið a.m.k.
vita með þeim fyrirvara) inn á reikning félagsins:
0101-26-011444, kt. 680374 - 0159.
Þeir sem hyggjast greiða fyrir matinn við innganginn
borga 4000 kr.
Ekki er unnt að taka við greiðslukortum.
Veturnáttablót
á Akureyri fyrsta vetrardag 24. október
Árni Einarsson hofgoði mun standa fyrir blóti
að heiðnum sið við sólúrið í
Kjarnaskógi 24. okt. kl: 18:00. Blót þetta
er helgað Óðni, uppskeru haustsins og öllum
þeim lifandi verum sem hverfa til hinnar eilífu hringrásar.
Í framhaldi
af blótinu er fyrirhugað að skipuleggja starfsemi
á svæðinu, því er mjög mikilvægt
að allir sem sjá sér fært að mæta,
láti sjá sig og taki virkan þátt í
að leggja drög að starfseminni.
Veturnáttablót
í Austurlandsgoðorði fer fram á
Vestdalseyri í Seyðisfirði kl. 15:00 á fyrsta
vetrardag þann 24. október. Baldur Pálsson
Freysgoði mun standa þar fyrir blótshaldi.
Siðfestufræðsla
hefst 24. október í Reykjavík.
Siðfestufræðsla á vegum Ásatrúarfélagsins
hefst laugardaginn 24. október. Jóhanna Harðardóttir,
Kjalnesingagoði mun sjá um siðfestufræðslu
í húsnæði félagsins Síðumúla
15 og hefst hún klukkan 12:00. Stefnt er að því
að fræðslan verði síðasta laugardag
í hverjum mánuði, að desember undanskildum.
Siðfestufræðslan er ætluð þeim sem
stefna að því að taka siðfestu á
næsta ári og er
hugsuð sem almenn kynning á heiðnum sið. Fjallað
verður meðal annars um siðfestuathöfnina sjálfa,
heiðin gildi og tákn, goðafræði og forna
menningu auk þess sem lesin verða Hávamál
og Völuspá og rætt um boðskap þessara
kvæða. Mikið er lagt upp úr opnum og gagn
virkum samskiptum við siðfestu fræðslu. Enn
er nóg pláss fyrir áhugasama sem vilja kynnast
heiðnum sið og taka þátt í spjalli
og vangaveltum á heimsspekilegum nótum.
Hafa má samband við Jóhönnu í síma
566 7326 og 699 3250.
Fyrirlestrar
og námskeið á opnu húsi:
Kennsla í víkingafatagerð verður
á opnu húsi 24. okt. Mynsturbækur til staðar,
aðstoð við snið á fatnaði, handbragð
við saumaskapinn og fleira. Jóhanna s. 566 7326
Haustblót
í Borgarfirði 19. september. Þann 19.
september heldur goði Vestlendinga Jónína K.
Berg blót í tilefni jafndægurs að hausti.
Blótið fer fram að Krumshólum í Borgarfirði,
sem eru í uþb.11 km. fjarlægð frá
Borgarnesi.
Ef komið er t.d.
frá Akranesi er ekið í gegnum Borgarnes í
austurátt á hringveginum tæpa 10 km. þar
til beygt er til hægri inná veg nr 530 - Ferjubakkaveg
og eftir tæpan kílómetra er aftur beygt til
hægri inná afleggjarann að Krumshólum.
Vegaskiltið að bænum er á vinstri hönd!
Blótið hefst
klukkan 18:00 og að því loknu er öllum velkomið
að grilla, en góð grill og grillaðstaða
er á staðnum og hægt að sitja innandyra með
kræsingarnar fyrir þá sem vilja. Svo um er
að gera að koma með sér eitthvað á
grillið. Öll aðstaðan á staðnum er
eins og best gerist á góðum blótum.
Samkvæmt Google
Earth eru Krumshólar staðsettir á 64°35'49,64"
N og 21°48'36,58" V.
Allir velkomnir.
Þingblót
Ásatrúarfélagsins verður haldið
25. júní á þórsdegi í
tíundu viku sumars.
Safnast verður saman kl. 18:00 í Almannagjá
og blásið verður til blóts um 18:30.
Allsherjargoði helgar blótið, goðar taka til
máls og þing verður sett.
Þegar lögsögumaður hefur sagt lögin frestar
hann þingi til hausts.
Á dagskrá er siðfestuathöfn og brúðkaup.
Eftir athafnirnar göngum við til tjalds og etum, syngjum
og verum glöð. Skemmtiatriði verða í boði.
Blót tollur er 3.000 krónur, en börn í
fylgd með foreldrum, 12 ára og yngri, fá frítt
að venju.
Vinsamlega greiðið tímanlega (minnst þremur
dögum fyrir blót, eða látið a.m.k.
vita með þeim fyrirvara) inn á reikning félagsins:
0101-26-011444, kt. 680374-0159, annars er svo erfitt að panta
hæfilegt magn matar.
Góða skemmtun!
Sumarsólstöðublót:
21. júní heldur Árni Einarsson hofgoði
sumrsólstöðublót á Akureyri.
Blótið verður haldið hjá sólúrinu
í Kjarnaskógi klukkan 18:00.
Nánari upplýsingar - arni@asatru.is
Útgáfutónleikar
Krauka í Síðumúlanum 11. júní
Húsið opnar kl. 20:00 en tónleikarnir hefjast
kl. 20:30 og er aðgangur ókeypis.
Guðjón
Rúdólf Guðmundsson og dönsku félagarnir
hans í hljómsveitinni Krauka (Krákan) halda
útgáfutónleika í Síðumúla
15 í tilefni geisladisksins " Óðinn"
sem er nýjasta afurð þeirra.
Meira
um hljómsveitina á heimasíðunni: www.krauka.dk
Gróðursetningarferð
Ásatrúarfélagsins í Heiðmörk
verður farin laugardaginn 6. júní ef ekki
hellirignir. Hittumst við reitinn okkar ofan við Þingnesið
kl. 13. Þeir sem vilja veiða á eftir eða
undan,
taki með sér veiðistöng og pening fyrir veiðileyfi.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma
6950675 eða á netfangið egillb@mmedia.is
Gróðurblót:
Árlegt gróðurbót Kjalnesingagoða
verður haldið við hús Skóræktar
ríkisins á Mógilsá laugardaginn 30.
maí klukkan 14:00. Eftir blótið verður grillað,
spjallað og spaugað. Hin árlega eggjaleit fer fram
með tilheyrandi verðlanaafhendigu. Sána Skógræktarinnar
stendur okkar til boða – mætum með handklæði.
Allir
velkomnir og takið mð ykkur gesti - Enginn blóttollur.
Jóhanna
Harðardóttir, Kjalnesingagoði - Sími: 699
325
Heiður
- seið hún kunni - Grunnnámskeið
um sjamanisma fyrir 21. öldina.
Laugardag 23. maí og fimmtudagana 28.maí, 4., 11.
og 18. júní.
Staðsetning: Akureyri og nágrenni - Leiðbeinandi:
Valgerður H. Bjarnadóttir
Á
námskeiðinu munum við fræðast lítillega
um þann sjamanisma sem er lifandi í dag og sögu
hans í menningu okkar sjálfra. Aðaláherslan
er þó á verkefni sem tengja okkur við
náttúruna og veruleikann. Við lærum m.a.
um heimana þrjá og vættir þeirra, máttardýr
og aðrar hamingjur, förum í draumferðir, sköpum
og ræðum saman til að blása líf í
minni völvunnar og vitkans sem í okkur býr,
vekja seiðinn úr dvala.
Seiður
eða sjamanismi hefur verið mikilvægur hluti daglegs
lífs, menningar og siða kvenna og karla um allan heim
frá örófi alda. Enn er sjamanismi lifandi meðal
frumbyggja heimsins, í Ástralíu, Ameríku,
Asíu, Afríku og á Norðurhjara Evrópu,
meðal Sama. Þörfin fyrir að blása líf
í glóðir þessa lífsforms er að
vakna meðal íbúa vestrænna iðn- og
markaðsríkja og þá kemur í ljós
að það lifir enn í glóðunum. Ef
kafað er í menningararfinn finnum við minni seiðsins
bæði í keltneskum og norrænum rótum
okkar.
Nánari
upplýsingar: www.vanadis.is
Sumardagurinn
fyrsti 23. apríl – Eftir blót í
Öskjuhlíðinni verður safnast saman í
Síðumúlanum.
Kvæðamannahópurinn
Bragi verður með æfingu fimmtudaginn 19.
mars að Síðumúla 15 klukkan 20:00. Nýir
félagar eru sérstaklega velkominr.
Kvæðamannahópurinn
Bragi kemur aftur saman til æfinga mánudaginn
2. febrúar í félagsheimili voru að Síðumúla
15. Æfigin hefst klukkan 20:00 og eru nýjir félagar
sérstaklega velkomnir í hópinn.
Þorrablót
Ásatrúarfélagsins 2009 - Ásatrúarmenn
slá ekki slöku við í kreppunni og halda
hið eina sanna þorrablót, nú sem endranær,
á bóndadag 23. janúar. Blótið
verður í Mörkinni 6, í húsi Ferðafélags
Íslands, sem verður opnað kl. 19:00.
Þegar goðar hafa blótað til landvætta
og helgað matinn, og við etið og drukkið full,
munu landsfrægir skemmtikraftar taka við og halda uppi
stemmningu sem vart hefur sést norðan Heimakletts.
Steindór Andersen kveður okkur í kútinn.
Ragnhildur Gísladóttir verður með tónlistaratriði
ásamt m.a. Birni Thoroddsen og Jóni Rafnssyni.
Fjöldasöngur.
Blóttollur er 4.500 krónur, en börn í
fylgd með foreldrum, 12 ára og yngri, fá frítt.
Takið sérstaklega eftir gömlu lummunni:
„Vinsamlega greiðið tímanlega inn á
reikning félagsins: 0101-26-011444, kt. 680374-0159. “
Góða skemmtun!