Viðburðadagatal 2010

22. jan.
Þorrablót Ásatrúarfélagsins 2010 - Senn líður að þorra og ekki er seinna vænna en að blóta hann með
stæl strax á bóndadag, sem er föstudagurinn 22. janúar. Þorrablót Ásatrúarfélagsins verður haldið á bóndadag í húsi Ferða félags Íslands að Mörkinni 6 eins og undanfarin ár. Þar komum við saman og snæðum hefðbundinn þorramat, njótum skemmtiatriða og samvista við annað heiðið fólk fram eftir kvöldi.

Húsið opnar kl. 19:00 og blóttollur er kr. 4.400,- fyrir manninn, en börn 12 ára og yngri fá frítt. Þeir sem vilja taka þátt, vinsamlegast greiði blóttollinn inn á reikning félagsins (nr. 0101-26-011444, kt. 680374-0159) ekki síðar en fimmtudaginn 21. janúar til að staðfesta fjölda gesta. Takmörk eru fyrir hve margir geta bæst í hópinn við innganginn. Félagsfólk er hvatt til að fjölmenna og taka með sér gesti.
Allir eru velkomnir - Góða skemmtun.

23. jan.
Fyrirlestur á opnu húsi: Rúnanotkun og rúnagerð - Bára Halldórsdóttir þjóðfræðinemi mun verða með fræðslu um rúnir og notkun þeirra og kennslu í að útbúa sitt egið rúnasett úr leir. Þetta höfðar ekki hvað síst til yngri kynslóðarinnar.

30.jan.
Jóhanna Harðardóttir, Kjalnesingagoði heldur áfram með siðfræðslu í Síðumúlanum. Þetta er þriðji tíminn og hefst hann kl 12:30 laugardaginn 30. jan. Búast má við að hann standi til klukkan 14:00.
Þeir sem mæta eru minntir á að koma með Hávamálin með sér (þeir sem eiga þau).
Hafa má samband við Jóhönnu í síma 566 7326 og 699 3250.
Allir eru velkomnir.

13. feb.
Fyrirlestur á opnu húsi: Heimsmynd ásatrúarinnar - Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði fjallar um heimsmynd ásatrúarinnar og helstu þætti hennar og á hverju hún byggist.

6. mars
Opinn lögréttufundur

13. mars
Fyrirlestur á opnu húsi: Kristilegt málfar heiðinna nútímamanna - og öfugt.
Bjarki M. Karlsson málfræðingur flytur erindi um ýmislegt í nútímamáli er rætur á í Kristnum sið, annars vegar - og í Heiðnum sið hins vegar, máltæki, orðtök og slíkt.

14. mars
Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði mun fjalla um heimsmynd ásatrúarinnar og helstu þætti hennar og á hverju hún byggist að Ekkjufelli í Fellum Fljótsdalshérað kl. 16:00
Allir velkomnir. Frekari upplýsingar hjá Austurlandsgoða sími 861-2164

20. mars
Vorjafndægur

10. apríl
Fyrirlestur á opnu húsi: Forn lögmál hlutfalla í hofbyggingum - Björn Kristjánsson húsasmíðameistari og Magnús Jensson arkitekt fjalla um stærðir, hlutföll og forn lögmál varðandi arkitektúr, form og rými hofa og bygginga.

22. apríl
Sumardagurinn fyrsti.
38 ár frá stofnun Ásatrúarfélagsins.

16. maí
37 ár síðan Ásatrúarfélagið fékk viðurkenningu sem löggilt trúfélag.

22. maí
Gróður- og grillblót fjölskyldunnar við Skóg ræktar stöðina á Mógilsá á Kjalarnesi.
Laugardaginn 22. maí kl. 14:00 verður haldið gróðurblót við Skógræktarstöðina í landi Mógilsár.
Safnast verður saman í skjólsælum lundi við húsið og verður leiðin vel merkt.

21. júní
Sumrsólstöður

24. júní
Þingblót Ásatrúarfélagsins 2010 verður haldið á Þingvöllum á þórsdegi í tíundu viku sumars (24. júní). Við hittumst kl. 18:00 í Almannagjá og blásið verður til blóts um kl. 18:30.

26. júní
Sumarblót verður haldið þann 26. júní næstkomandi að Skálanesi í Seyðisfirði og hefst kl. 15.00 við Skálanesbjarg.

3. júlí
Sveinbjarnarblót verður haldið laugardaginn 3. júlí á tjaldsvæðinu Hjallaflötum í Heiðmörk. Þar er frábær grillaðstaða og salerni, en því miður er ekkert vatnsflæði, svo við minnum fólk á að taka með sér vatnsbrúsa. Við ætlum að hittast á Hjallaflötum um kl. 17:00 og stendur blótið fram á næsta dag þar sem gert er ráð fyrir að tjalda yfir nótt. Munum við byrja á að grilla saman og nærast og kveikja svo í varðeldi þar sem siðfestuathöfn í umsjón Jónínu K. Berg Þórsnesgoða, fylgir á eftir.

15. júlí
Vestfirðingagoði blótar í Skatnavör í Arnardal fimmtudaginn 15. júlí kl. 18:00
Allir velkomnir. Eyvindur P. Eiriksson - sími 868-7724

4. sept.
Opinn lögréttufundur laugardaginn 4. september kl. 15:00 í Síðumúla 15.
Umræðuefni: Vetrarstarfið.

23. sept.
Haustjafndægur

23. okt.
Fyrsti vetrardagur

30. okt.
Allsherjarþing Ásatrúarfélagsins

31. okt.
Opinn lögréttufundar

21. des.
Vetrarsólstöður

Til baka á forsíðu - Til baka á fréttasíðu