Starfsemi Ásatrúarfélagsins

Blót
Athafnir (nafngjöf, siðfesta, hjónavígslur, útfarir)
Ljósmyndir frá starfsemi félagsins
Forsíða

Tilgangur Ásatrúarfélagsins er að starfa að eflingu ásatrúar og annast þá trúarlegu þjónustu sem því er samfara. Þessu markmiði hyggst félagið ná með fræðslu- og félagsstarfi en ekki trúboði, enda segir í reglum félagsins að trúboð sé óþurftaverk.

Samkvæmt lögum um trúfélög ber Ásatrúarfélaginu að inna að hendi athafnir, svo sem hjónavígslur og útfarir, athafnir þessar eru framkvæmdar af allsherjargoða eða staðgengli hans, auk þeirra goða sem hafa hjónavígsluréttindi.

Goðar félagsins, hver í sínu héraði halda þar uppi starfsemi með fræðslu og blóthaldi og sjá einnig um athafnir á vegum félagsins.

Goðar og fleiri félagsmenn sinna ýmsum fræðslustörfum og hafa oft haldið kynningar um heiðinn sið og ásatrú í skólum og hjá félagasamtökum.

Í gegnum tíðina hafa fjölmargir athyglisverðir og fræðandi fyrirlestrar og spjallfundir fræðimanna og goða verið haldnir á vegum félagsins sem ávalt hafa verið mjög vel sóttir. Innan vébanda félagsins er margt fjölhæft listafólk sem leggur oft sitt af mörkum á blótum, skemmtunum og á fræðaslufundum.

Á laugardögum kl 14:00 - 16:00 er opið hús í félagsheimili Ásatrúarfélasins að Síðumúla 15.
Fundir þessir eru opnir öllum þeim er vilja fræðast um ásatrúna og félagið. Allir eru velkomnir.

Fyrsta laugardag hvers mánaðar fer barnastarf Ásatrúarfélagsins fram. Starf þetta er sniðið fyrir börn á aldrinum 5 -12 ára.

Með hléum hefur ungliðastarf farið fram á vegum félagsins.

Allsherjarþing Ásatrúarfélagsins er haldið síðasta laugardag í október ár hvert, þá er kosið í stjórn og nefndir auk venjulegra aðalfundastarfa.

Samkvæmt reglum félagsins skulu fjögur höfuðblót haldin árlega og fylgja þau hinu forna missera- og vikutali.

Einnig gefur Ásatrúarfélagið út fréttabréf sem sent er félagsmönnum. Fréttabréfið, sem heitir Vor siður, er gefið út fyrst og fremst til að koma skilaboðum til félagsmanna og birta ýmsan fróðleik.