Askur og Embla

Askur og Embla hétu fyrsta mannfólkið sem goðin sköpuðu og gáfu líf. Snorri Sturluson segir í Gylfaginningu að það voru þeir Vilji og Vé, ásamt bróður sínum Óðni er gáfu mannkyni líf, en sankvæmt Völuspá voru það Óðinn, Hænir og Lóður.

En svo segir í Völuspá

Uns þrír kómu
úr því liði
öflgir og ástkir
æsir að húsi,
fundu á landi
lítt megandi
Ask og Emblu
örlöglausa.

Önd þau né áttu,
óð þau né höfðu,
lá né læti
né litu góða;
önd gaf Óðinn,
óð gaf Hænir,
lá gaf Lóður
og litu góða.