Ásynjur

Eir

Sú er eirir, hlífir. Eir er sögð læknir bestur, er lækningargyðja heiðinna manna. Samkvæmt Snorra-Eddu er hún sögð vera valkyrja.

Freyja

Hin fagra og tigna gyðja ástar og frjósemi er af vanaætt, dóttir Njarðar og systir hans, og systir Freys. Maður hennar heitir Óður og dætur þeirra eru Hnoss og Gersemi. Bústaður hennar er Fólkvangur þar sem hinn mikli og fagri salur Sessrúmnir er. Einkennisgripir hennar eru brísingarmenið, valshamurinn og gölturinn Hildisvíni. Reið á Freyja sem kettir tveir, Högni og Þófnir draga er hún ferðast um. Hún er talin vera verndagyðja heimila og á hana er gott að heita til ásta og unaðar.

Frigg

Höfuðgyðja af ásaætt og eiginkona Óðins, móðir Baldurs. Hún er Fjörgynsdóttir, en faðir hennar er annars óþekktur. Bústaður hennar í Ásgarði heitir Fensalir þar sem meyjarnar Fulla og Gná þjóna henni. Einkennisgripur hennar er valshamur. Frigg veit öll örlög.

Fulla

Önnur þjónustumær Friggjar er veit leyndarmál hennar. Hún ber eski Friggjar og gætir skóklæða hennar. Sögð jómfrú og gangi með gullband um enni sér.

Gefjun

Sú er plægði Sjáland laust frá Svíþjóð með því að beita fjórum sonum sínum fyrir plóginn en þeim breytti hún í uxa.

Gerður

Dóttir jötunsins Gymis og Aurboðu. Kona Freys. Sonur þeirra heitir Fjölnir.

Gná

Hana sendir Frigg í ýmsa heima að erindum sínum. Gná á hestinn Hófvarpni er rennur bæði loft og lög.

Hlín

Snorri Sturluson kveður hana setta til gæslu yfir þeim mönnum er Frigg vill forða frá háska. Í Völuspá virðist Hlín vera annað nafn Friggjar.

Iðunn

Sú sem endurnýjar. Kona Braga. Hún varðveitir í eski sínu hin níu gullnu epli sem goðin skulu bíta í er þau eldast og verða þau þá aftur ung allt til ragnaraka.

Lofn

Er svo mild og góð til áheita að hún fær leyfi af Alföður eða Frigg til manna samgangs, þótt áður sé bannað eða þvertekið.

Nanna

Eiginkona Baldurs. Þeirra sonur er Forseti.

Rindur

Váli er sonur hennar og Óðins.

Sága

Ásynja er býr á Sökkvabekk. Fátt annað er vitað um hana nema að hún og Óðinn drekka alla daga glöð úr gullnum kerum.

Sif

Eiginkona Þórs og móðir Ullar.

Sigyn

Eiginkona Loka. Hún heldur mundlaug undir eiturdropa þá er drupu úr eiturorminum ofaná Loka hlekkjaðan.

Sjöfn

Hún gætir mjög að snúa hugum manna til ásta, karla og kvenna. Af hennar nafni er elskhuginn kallaður sjafni.

Skaði

Dóttir jötunsins Þjassa og eiginkona Njarðar. Skaði er gyðja veiða og skíðaferða. Hún býr í Þrymheimi.

Snotra

Gyðja sem er vitur og látprúð.

Syn

Gyðja þinga og gætir dyra í höll, líklega í Valhöll. Talin vera verndargyðja. Af nafni hennar kemur orðið synjun.

Vár

Hlýðir á eiða og einkamál er veita sín á milli konur og karlar. Því heita þau mál Várar. Hún hefnir og þeim er brigða.

Vör

Hún er vitur og spurul svo að engan hlut má hana leyna.