Nornir
Urður, Verðandi og Skuld eru örlaganornirnar í Norrænu goðafræðinni. Nafn Urðar merkir “það sem orðið er” fortíðin. Verðandi “hin líðandi stund” er norn nútímans en Skuld, “það sem skal gerast” er norn framtíðar. Þær ákveða aldur og örlög manna.
Nornirnar geta líka séð framtíðina. Þær hafa spáð fyrir um ragnarök, það er hvernig og hvenær heimurinn mun farast. Þær búa við brunn þann er Urðarbrunnur heitir og stendur við eina af þrem rótum Asks Yggdrasils í Ásgarði. Örlaganornirnar vökva Askinn með hvítri leðju til að viðhalda lífskrafti hans.
Segir svo í Völuspá
Ask veit eg standa,
heitir Yggdrasill,
hár baðmur, ausinn
hvíta auri;
þaðan koma döggvar
þær er í dala falla,
stendur æ yfir grænn
Urðarbrunni.
Þaðan koma meyjar
margs vitandi
þrjár úr þeim sæ,
er und þolli stendur;
Urð hétu eina,
aðra Verðandi,
skáru á skíði,
Skuld ina þriðju.
Þær lög lögðu,
þær líf kuru
alda börnum,
örlög seggja.
Framundan
-
Gróðurblót fjölskyldunnar
Mógilsá, 26. maí -
Allir laugardagar
Opið hús milli 14 og 16. Undirbúningur fyrir manndómsvígslu síðasta laugardag í hverjum mánuði kl. 12. -
Öll óðinskvöld
Leshópur: kvæði um Sigurð Fáfnisbana
