Spurt og svarað
Hvernig geng ég í Ásatrúarfélagið?
Ásatrúarfélagið er löggilt trúfélag á Íslandi og hefur það að markmiði að hefja til vegs og virðingar fornan sið og forn menningarverðmæti og halda heiðinni siðvenju í hefð. Félagið er opið öllum þeim er áhugasamir eru um ýmiskonar þjóðtrú, gamlar hefðir og menningarverðmæti..
Íslenskir ríkisborgarar 16 ára og eldri, sem og útlendingar með fasta búsetu á Íslandi sem tilbúnir eru að fylgja reglum félagsins geta skráð sig í félagið. Þeir sem ekki hafa náð 16 ára aldri verða að hafa samþykki foreldra fyrir félagsaðild. Allir félagar eru virtir að jöfnu, hafa kosningarétt og geta gefið kost á sér í trúnaðarstöður innan félagsins. Samkvæmt íslenskum lögum er aðeins leyfilegt að vera skráður í eitt trúfélag.
Þjóðskrá, Borgartúni 24 150 Reykjavík sér um skráningu í trúfélög. Þar er opið virka daga kl. 8:30 – 16:00. Á slóðinni http://www.thjodskra.is/, er hægt að sækja og prenta út trúskiptaeyðublöð. Eyðublöðin má setja í póst eða senda sem símbréf til Þjóðskrár Borgartúni24. Bréfsíminn er 569 2949.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 569 2900. Munið að undirrita. Þetta er sáraeinfalt mál!
Á sýsluskrifstofum er hægt að nálgast trúskiptaeyðublöð. Velkomið er líka að snúa sér til skrifstofu Ásatrúarfélagsins Síðumúla 15 eða hvaða goða félagsins sem er.
Mega allir mæta á blót?
Blót eru öllum opin og eru allir þeir velkomnir sem vilja fylgjast með eða taka virkan þátt í blótinu.
Eru blótin ekki bara drykkjuveislur?
Nei, fyrst og fremst eru blótin helgiathafnir ásatrúarmanna, þar sem komið er saman og oftast er matarveisla tengd blótinu. Þó að blót séu einnig gleðskapur og ávalt helgur drykkur í horni er hófs gætt því í Hávamálum eru heilræði þess efnis að gæta hófs við blóthald og drykkju. Á blótum fara oft fram umræður um ýmis efni sem tengjast ásatrúnni. Þetta getur verið um eðli guðanna eða einhverja þætti í hegðun manna. Í raun geta umræðurnar verið um hvað sem er tengt ásatrú, Ásatrúarfélaginu eða trúmálum yfirleitt.
Eru athafnir eins og hjónavígsla eða greftrun fullgildar og löglegar?
Já, vegna þess að Ásatrúarfélagið er löggilt trúfélag. Bæði allsherjargoði og staðgengill hans hafa leyfi til þessara athafna, auk þeirra goða sem hafa fengið vígsluréttindi.
Halda ásatrúarmenn jól?
Frá fornu fari hafa jólin verið hátíð heiðinna manna sem haldin er við vetrarsólhvörf. Hin heiðnu jól eru hátíð ljóssins þegar sólin fer hækkandi á lofti og dag tekur að lengja. Þetta eru tímamót nýs upphafs, nýs árs og friðar. Flest öll tákn jólanna svo sem jólatréð, jólasveinarnir, jólaljósin og jólagjafirnar eru upprunnin úr heiðnum sið og Íslenskri þjóðtrú. Auk þess mætti nefna að eitt nafna Óðins er Jólnir. Jólablót Ásatrúarfélagsins er ein aðalhátíð ásatrúarmanna.
Hvers vegna er ásatrúin vinsæl núna?
Þó að ásatrúin eða heiðinn siður eins og margir kjósa oft frekar að kalla það, hafi legið lengi í dvala, hefur heiðnin lifað góðu lífi í þjóðtrúnni og skáldskap og sem trú á álfa og aðrar huldar verur náttúrunnar.
Ásatrú var bönnuð með lögum hér á landi árið 1000 þó leyfilegt hafi verið að blóta á laun. Það var ekki fyrr en 1874 að trúfrelsi var tryggt með nýrri stjórnarskrá.
Heiðinn siður kallast skemmtilega á við lífsviðhorf nútímamanna þar sem helstu gildi ásatrúarinnar höfða sterkt til heilbrigðrar skynsemi og sjálfstæðrar hugsunar.
Hvernig stunda heiðnir menn trú sína?
Dags daglega er ekki verið að ástunda trúarsiði svo sérlega mikið, þetta er meira spurning um lífssýn og lífsmáta, allt óhóf þykir t.d. vera alveg á skjön við heiðinn sið, gagnstætt víkingaímyndinni sem er svolítið öfgakennd og á í raun ekkert svo mikið skylt við heiðinn sið eða Ásatrú þó nokkuð af víkingum hafi verið heiðnir en margir þeirra voru kristnir þegar á leið.
Hver sem vill getur haldið sín blót auk þess sem Ásatrúarfélagið stendur fyrir blótum sem margir sækja en enginn er skyldugur til að mæta á.
Samband við goð og aðrar verur iðka margir á jafnréttisgrundvelli, þau eru svona eins og fagrir vinir en ekki ósnertanleg á stalli.
Í Hávamálum og Eddunum er góð lífsspeki og heilræði, þar sem hvorki eru skipanir gefnar né dæmt.
Reyndar er lítill hópur innan félagsins að iðka hugleiðslur inná goð, verur og krafta innan norrænu goðafræðinnar.
Ásatrúin er einstaklingsbundin trúarbrögð og iðkuð eins og hverjum og einum hentar best.
Hvernig er staða kvenna í ásatrú eða Ásatrúarfélaginu?
Í Ásatrúarfélaginu hafa lengi verið mun fleiri karlar en konur en hlutfallið er að jafnast núna, en á stofnfundi félagsins sumardaginn fyrsta 1972 voru stofnfélagarnir 6 konur og 6 menn.
Miðað við önnur trúfélög er staða kvenna nokkuð góð ef litið er á stjórnarstörf og trúnaðarstöður, þó þyrfti að vera jafnara hlutfall meðal goða, þar sem fleiri goðar eru karlkyns í dag.
Sem dæmi mætti nefna að árin 2001-2 voru settur allsherjargoði og lögsögumaður Ásatrúarfélagsins konur sem eru tvö aðal ábyrgðar- og trúnaðarstörf félagsins.
Í dag eru stjórnarmenn og varamenn í stjórn þrjár konur og fjórir karlar.
Ef litið er á norrænu goðafræðina sjálfa er ekki minna af kvenkyns goðverum, dísum, valkyrjum og öðrum máttugum kvenverum en karlverum og goðum.
Framundan
-
Gróðurblót fjölskyldunnar
Mógilsá, 26. maí -
Allir laugardagar
Opið hús milli 14 og 16. Undirbúningur fyrir manndómsvígslu síðasta laugardag í hverjum mánuði kl. 12. -
Öll óðinskvöld
Leshópur: kvæði um Sigurð Fáfnisbana
