Ýmsar skepnur
Auðhumla
Auðhumla er nafn frumkýrinar, en hún varð til þegar frost og hrím Niflheims og eldar Múspelsheims runnu saman og blönduðust í Ginnungargapinu þar sem sköpunin átti sér stað. Úr spenum Auðhumlu runnu fjórar mjólkurár sem Ýmir nærðist á. Auðhumla sleikti salta hrímsteina til að fá næringu og leysti úr steinunum forföður goðanna, Búra.
Huginn og Muninn
Huginn og Muninn (hugurinn og minnið) eru hrafnar Óðins. Á hverjum morgni sendir Óðinn þá til að fljúga um heim allan og taka eftir öllu sem þar gerist. Á kvöldin snúa þeir til baka og setjast á axlir Óðins og segja honum frá öllu því sem þeir hafa séð og heyrt þann daginn. Þannig verður Óðinn margra tíðinda vísari.
Miðgarðsormur
Miðgarðsormurinn heitir skrímsli eitt mikið er liggur í hafinu sem umkringir heiminn og bítur þar í halann á sér. Hann er sonur Loka og Angurboðu. Í ragnarökum berst Þór við Miðgarðsorminn og drepur hann, en fellur síðan sjálfur fyrir eitri sem ormurinn spýtir á hann.
Sleipnir
Sleipnir (sá er rennur hratt áfram) er hinn áttfætti hestur Óðins, afkvæmi Loka að móðerni og jötnahestsins Svaðilfara. Sleipnir er sagður bestur af hestum ásanna og hafi rúnir ristar á tennur sér.
Sleipnir er sagður hafa myndað Ásbyrgi sem er í laginu eins og hóffar.
Fernir
Fernir eða Fenrisúlfur er afkvæmi Loka og Angurboðu. Goðin ólu upp úlfinn sem síðar varð svo stór og hættulegur að þau ákváðu að fjötra hann. Eftir að úlfurinn hafði slitið af sér fjötrana Læðing og Dróma tókst þeim að fjötra hann með Gleipni. Til þess að þetta gengi upp þurfti Týr að fórna hægri hönd sinni í gin Úlfsins. Liggur nú Fenrisúlfurinn fjötraður á eynni Lyngva með sverð spent milli gómana og grenjar ógurlega. Slefan er rennur úr kjafti hans myndar fljótið Ván. Þarna mun hann liggja allt til ragnaraka, en þá mun honum takast að slíta sig lausan og gleypa Óðinn áður en Víðar nær að drepa hann.
Dvergar
Upptalning úr Völuspá
Alþjófur, Aurvangur, Austri, Ái, Álfur, Án, Ánar, Bávör, Bívör, Bömbur, Dólgþrasir, Draupnir, Durinn, Dvalinn, Eikinskjaldi, Finnur, Fíli, Fjalar, Frár, Frosti, Frægur, Fundinn, Gandálfur, Ginnar, Glói, Hannar, Haugspori, Hár, Hefti, Hlévangur, Hornbori, Jari, Kíli, Litur, Lofars, Lóni, Mjöðvitnir, Mótsognir, Náli, Nár, Niði, Norðri, Nóri, Nýi, Nýráður, Ráðsviður, Reginn, Skáfiður, Skirvir, Suðri, Svíur, Veigur, Vestri, Vindálfur, Virvir, Vitur, Víli, Yngvi, Þekkur, Þorinn, Þráinn, Þrár.
Framundan
-
Gróðurblót fjölskyldunnar
Mógilsá, 26. maí -
Allir laugardagar
Opið hús milli 14 og 16. Undirbúningur fyrir manndómsvígslu síðasta laugardag í hverjum mánuði kl. 12. -
Öll óðinskvöld
Leshópur: kvæði um Sigurð Fáfnisbana
