Stjórn
Lögrétta er æðsta ráð og jafnframt framkvæmdastjórn Ásatrúarfélagsins. Núverandi lögrétta hefur starfað síðan 29. október 2011.
Lögrétta
Hallur Guðmundsson
Lögsögumaður
Böðvar Þórir Gunnarsson
Staðgengill lögsögumanns
Sigurlaug Lilja Jónasdóttir
Meðstjórnandi
Bjarki M Karlsson
Ritari
Hulda Sif Ólafsdóttir
Gjaldkeri
Hilmar Örn Hilmarsson
Allsherjargoði
Jóhanna Harðardóttir
Kjalnesingagoði og staðgengill Allsherjargoða
Varamenn lögréttu
Lenka Kovářová
Varamaður
Önnur embætti
Haukur Dór Bragason
Ritstjóri Vors siðar
vorsidur@asatru.is
Bjarki M Karlsson
Hallur Guðmundsson
Andrea Ævarsdóttir
Vefstjórn
asatru@asatru.is
Allsherjarþing fer með æðsta vald í félaginu. Skal það sett á Þingvöllum á þórsdag í tíundu viku sumars ár hvert, en lögréttu er heimilt að fresta þingstörfum til síðasta laugardags í októbermánuði. Allir félagar Ásatrúarfélagsins eiga rétt til setu á allsherjarþingi og hafa þar málfrelsi og tillögurétt. Atkvæðisréttur og kjörgengi miðast við 18 ára aldur.
Lögrétta er æðsta ráð og jafnframt framkvæmdastjórn Ásatrúarfélagsins. Í henni sitja fimm félagsmenn, kjörnir af allsherjarþingi, og skulu þeir skipta með sér embættum. Embættin eru lögsögumaður, staðgengill lögsögumanns, gjaldkeri, ritari og meðstjórnandi. Allsherjarþing skal einnig kjósa tvo menn til vara. Auk þeirra eiga sæti í lögréttu allsherjargoði og einn fulltrúi sem goðar tilnefna úr sínum röðum. Allir goðar hafa rétt til setu á fundum lögréttu með málfrelsi og tillögurétti. Hver lögréttumaður fer með eitt atkvæði.
Lögrétta skipar í nefndir og hefur umsjón með starfi þeirra. Nefndir geta leitað álits lögréttu, goða eða félagsmanna um mál sem þær hafa til meðferðar. Nefndir skila niðurstöðum sínum til lögréttu sem leggur þær fyrir allherjarþing.
Lögrétta kemur saman minnst þrisvar sinnum á ári; fyrsta sunnudag eftir allsherjarþing, fyrsta laugardag í mars og fyrsta laugardag í september. Almennum félagsmönnum er heimilt að sitja fasta lögréttufundi. Ekki þarf að auglýsa lögréttufundi.
Lögsögumaður gegnir hlutverki framkvæmdarstjóra félagsins. Hann varðveitir skjöl og lagatexta. Hann kallar saman fundi, stýrir þeim eða skipar fundarstjóra. Lögsögumaður getur í umboði lögréttu kallað menn til verka í þágu félagsins. Honum er skylt að boða til fundar óski að minnsta kosti tveir lögréttumenn þess.
Framundan
-
Gróðurblót fjölskyldunnar
Mógilsá, 26. maí -
Allir laugardagar
Opið hús milli 14 og 16. Undirbúningur fyrir manndómsvígslu síðasta laugardag í hverjum mánuði kl. 12. -
Öll óðinskvöld
Leshópur: kvæði um Sigurð Fáfnisbana
