Af óviðráðanlegum ástæðum verður ekkert handverkskvöld í kvöld.
Í maí næstkomandi verður gefið út tímaritið Vor Siður, en útgáfan er tileinkuð 50 ára afmæli löggildingar Ásatrúarfélagsins. Ritstjórn Vors Siðar óskar því eftir efni, myndum og innleggjum, og þá sérstaklega sögum úr starfsemi félagsins en málefnaleg og fræðileg innlegg eru einnig vel þegin.
Senda má efni á skrifstofa@asatru.is
Ritstjórn Vors Siðar
Tilkynning; Eddukvöldið fellur niður í kvöld vegna veikinda.
Handverkskvöld í kvöld kl 20:00, kaffi á könnunni og öll velkomin!
Minnum á opið hús á morgun laugardaginn 28.01.23 frá kl 14-16. Öll velkomin og kaffi á könnunni!
Að venju verður handverkskvöld hjá okkur í kvöld í hofinu okkar að Menntasveigi 15. Kaffi á könnunni og öll velkomin!
Eddukvöld í kvöld kl 20:00! Kaffi á könnunni og öll velkomin. Greiðfært að hofinu bæði keyrandi og með að leggja hjá Nauthóli og ganga rest.

Opið hús 21. janúar.
Þorvaldur Friðriksson fyrrverandi fréttamaður mun flytja erindi á opnu húsi laugardaginn 21. janúar.
Heiti erindis:
„Keltar: Uppruni Íslendinga. Áhrif Kelta á
tungu og menningu Íslendinga.“
Þorvaldur Friðriksson er stúdent frá MR 1972. Hann lagði stund á sagnfræði og bókmenntir við Háskóla Íslands. Þá lærði hann fornleifafræði í Svíþjóð við háskólana í Gautaborg og Skokkhólmi. Rannsakaði keltnesk áhrif í fornleifum á Íslandi og skrifaði BC ritgerði í fornleifafræði 1982 um keltneska húsgerð sem er að finna á Íslandi. Bókin Keltar: Áhrif á íslenska tungu og menningu kom út eftir hann á árinu 2022.
Opið hús 4. febrúar.
Sverrir Jakobsson prófessor í miðaldasögu við Háskóla Íslands
mun flytja erindi á opnu húsi laugardaginn 4. febrúar.
Heiti erindis:
„Hvernig skilgreindu Íslendingar heiðni á 13. og 14. öld?“
Sverrir útskrifaðist frá Menntaskólanum við Sund árið 1990, lauk svo B.A.-prófi við Háskóla Íslands 1993 og M.A.-prófi frá Háskólanum í Leeds í Bretlandi. Lauk svo doktorsprófi frá HÍ 2005. Sverrir var aðjunkt í sagnfræði við Háskóla Íslands árin 2010-2013, lektor 2013-2014 og hefur starfað sem prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands frá árinu 2014 . Sverrir hefur skrifað fjölda bóka og fræðigreina.
Handverkskvöld í kvöld í hofinu okkar í Öskjuhlíð. Kaffi á könnunni og þau sem hafa áhuga á vattarsaumi geta fengið örnámskeið gegn vægu gjaldi, nálin fylgir með ef vill!


