


Ekkert handverkskvöld verður í kvöld 13.12.22 (vegna framkvæmda).
Öll velkomin á opið hús á morgun laugardag í hofinu okkar að Menntasveigi 15 frá kl 14-16. Kaffi á könnunni!
Því miður verður opnu húsi aflýst á morgun 3. desember vegna Covid.
Íslenskan tekur hröðum breytingum og ýmsum veitist erfitt að fylgjast með nýyrðum og notkun þeirra.
Meðal breytinganna eru t.d. kynhlutlaus orð og orð sem notuð eru um kynsegin fólk, t.d. persónufornöfn.
Ásatrúarfélagið hefur boðið Önnu Sigríði Þráinsdóttur, málfarsráðunaut RUV að halda framsöguerindi um þessa málnotkun, en á eftir verða umræður og hugsanlega fyrirspurnir fundargesta.
Fundurinn verður haldinn sunnudaginn 4. desember kl. 16:00 í hofinu.
Fundurinn er opinn félagsmönnum meðan húsrúm leyfir.
Verðum því miður að tilkynna að blótinu verður aflýst í kvöld 01.12.22 vegna covidsýkingar.
Eddukvöld í kvöld kl 20:00! Haldið verður áfram að rýna í Hávamálin. Öll velkomin í hofið okkar og kaffi á könnunni!