Því miður fellur leshópurinn okkar niður í kvöld 2. nóvember. Mætum hress að viku liðinni!
Handverkskvöld í kvöld kl 20:00 í hofinu okkar! Kaffi á könnunni og öll velkomin!
Námskeið í vattarsaumi í boði fyrir þá sem vilja, og er þátttökugjaldið 3000 kr.
Opinn lögréttufundur sunnudaginn 30. október kl 13:00 í hofi félagsins í Öskjuhlíð að Menntasveigi 15.
Dagskrá:
- Stjórn skiptir með sér verkum
- Önnur mál
Að venju mun leshópurinn okkar hittast í kvöld og áfram verður grúskað í hávamálum. Kaffi á könnunni og öll velkomin!
Mæting kl 20:00 í hofið okkar á Menntasveigi 15.
Handverkskvöld annað kvöld 25. október klukkan 20:00. Við bjóðum aftur upp á örnámskeið í vattarsaumi fyrir þá sem vilja. Verðið fyrir námskeiðið er 3000 kr.
Kaffi á könnunni að venju og öll velkomin með sitt handverk.
Leshópurinn heldur áfram með Hávamálin í kvöld, kaffi á könnunni og öll velkomin! Mæting kl 20:00 í hofinu okkar.
Námskeið í vattarsaumi á handverkskvöldi í kvöld kl 20:00 í hofinu okkar! Gjaldið er 3.000 fyrir hvern sem tekur þátt. Það þarf að taka með sér vattarsaumsnál og léttlopa. Þeir sem eiga ekki nál geta fengið lánaða nál hjá okkur í kvöld. Að venju verður kaffi á könnunni og öll velkomin!
Allsherjarþing 2022.
Allsherjarþing Ásatrúarfélagsins fyrir starfsárið 2021-2022 verður haldið í hofi Ásatrúarfélagsins í Öskjuhlíð að Menntasveigi 15 laugardaginn 29. október nk. kl. 14:00.
Allir félagsmenn velkomnir og hvattir til að mæta.
Verkefni þingsins eru þessi:
1. Skýrsla lögréttu, borin upp til umræðu og staðfestingar.
2. Reikningar lagðir fram til umræðu og til staðfestingar.
3. Lagabreytingar og aðrar tillögur.
4. Kosið í lögréttu.
5. Kosning skoðunarmanna reikninga, nefnda og í aðrar trúnaðarstöður.
6. Önnur mál.
Til að komast að hofinu er best að leggja hjá Nauthóli eða á bílastæðinu við Háskóla Reykjavíkur. Ef illa gengur að finna hofið er hægt að hringja í síma 861-8633 til að fá nánari leiðsögn.
Veturnáttablót Ásatrúarfélagsins verður haldið 22. október sem er fyrsti vetrardagur.
Blótið hefst klukkan 20:00 við hofið okkar að Menntasveigi 15, og eru öll velkomin.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með að senda okkur skilaboð á asatru@asatru.is
Leshópurinn hittist kl 20:00 í kvöld! Haldið verður áfram með Hávamálin.
Að venju verður kaffi á könnunni og öll velkomin!

