Hjónavígsla
Á undanförnum árum hafa fjölmargar hjónavígslur farið fram að heiðnum sið og oft hafa erlend brúðhjón komið til landsins í þeim tilgangi einum að láta vígja sig saman af goðum Ásatrúarfélagsins.

Ástæða þess er sú að enn sem komið er hafa einungis ásatrúarfélögin í Danmörku og Noregi auk Íslands fengið viðurkenningu sem löggild trúfélög með þeim skyldum og réttindum sem slíku fylgir. Hjónavígslur þessar eru því fullkomlega gildur lögformlegur gjörningur. Oftast fer þessi athöfn fram undir berum himni og er skipulögð í samræmi við óskir brúðhjónanna hvað varðar staðsetningu, tónlist og aðra umgjörð athafarinnar
Hjónavígsla
Þeir goðar Ásatrúarfélagsins sem hafa vígsluréttindi framkvæma hjónavígslur að beiðni hjónaefna. Lista yfir goða félagsins er að finna hér
Kostnaður við athöfn
Félagsmenn Ásatrúarfélagsins greiða aðeins ferðakostnað og uppihald goða við athöfn, en félagið sjálft greiðir goða laun vegna athafnarinnar.
Utanfélagsmenn greiða allan kostnað við athöfn.
Laun goða fyrir hjónavígslu eru kr. 20.000
Akstur greiðist samkvæmt taxta BSRB (1.okt. 2011; kr.111 pr. km.) eða eftir samkomulagi.
Undirbúningur
Þeim sem hyggja á Ásatrúarbrúðkaup er bent á að hafa samband við einhvern goðanna og semja við hann um dagsetningu, staðarval og fleira. Goði mun síðan leiðbeina brúðhjónum við lagalegan undirbúning athafnarinnar, útskýra grunnþætti hennar og hvernig megi laga hana vild brúðhjónanna.
Framundan
-
Gróðurblót fjölskyldunnar
Mógilsá, 26. maí -
Allir laugardagar
Opið hús milli 14 og 16. Undirbúningur fyrir manndómsvígslu síðasta laugardag í hverjum mánuði kl. 12. -
Öll óðinskvöld
Leshópur: kvæði um Sigurð Fáfnisbana
