Um Ásatrúarfélagið
Ásatrúarfélagið var formlega stofnað sumardaginn fyrsta árið 1972 og fékk viðurkenningu sem löggilt trúfélag ári síðar, þann 16. maí 1973. Tilgangur félagsins er að starfa að eflingu ásatrúar og annast þá trúarlegu þjónustu sem því er samfara. Þessu markmiði hyggst félagið ná með fræðslu- og félagsstarfi en ekki trúboði.
Ásatrúarfélagið vill hefja til vegs og virðingar fornan sið og forn menningarverðmæti. Það er einnig vilji félagsins að auka skilning og áhuga á þjóðtrú og gömlum hefðum. Þetta vill félagið gera án þess að gera lítið úr öðrum trúarsiðum, gömlum eða nýjum, eða menningu annarra þjóða. Ofstæki eða hatur í garð annarra getur aldrei samrýmst stefnu félagsins.
Samkvæmt lögum um trúfélög ber Ásatrúarfélaginu að inna af hendi athafnir á borð við hjónavígslur og útfarir. Athafnir þessar eru framkvæmdar af allsherjargoða og þeim goðum sem hafa vígsluréttindi.
Ásatrúarfélagið er fimmta stærsta trúfélagið á Íslandi og það stærsta sem byggir ekki á kristnum grunni. Nú eru vel yfir 5.000 einstaklingar skráðir í félagið.