Siðfesta
Siðfesta er valkostur fyrir ungmenni sem og fullorðna sem vilja dýpka skilning sinn á heiðnum sið. Siðfestuathöfnin getur farið fram á hefðbundnu blóti úti eða inni, að undangenginni fræðslu hjá einum eða fleiri goðanna þar sem farið er yfir megininntak og siðfræði heiðins siðar; það er: Ábyrgð einstaklingsins á sjálfum sér, heiðarleiki, umburðarlyndi gagnvart trú og lífsskoðunum annarra og virðing fyrir náttúrunni og öllu lífi. Einnig er fræðst um goðafræðina, heimsmyndina og helstu heiðin tákn, byggt á Eddukvæðum og Snorra-Eddu.
Undirbúningi lýkur svo með því að viðkomandi les og hugleiðir sérstaklega Hávamál.
Sumir einstaklingar hafa þá dvalið sólarhringslangt einir með sjálfum sér og náttúrunni. Að því búnu velur viðkomandi nokkur erindi sem leiðarljós í lífinu og flytur þau síðan við siðfestuathöfnina.
Framundan
-
Gróðurblót fjölskyldunnar
Mógilsá, 26. maí -
Allir laugardagar
Opið hús milli 14 og 16. Undirbúningur fyrir manndómsvígslu síðasta laugardag í hverjum mánuði kl. 12. -
Öll óðinskvöld
Leshópur: kvæði um Sigurð Fáfnisbana

