Skip to main content

Jökull Tandri nýr staðgengill Allsherjargoða

Eftir september 11, 2025Fréttir

Jökull Tandri ÁmundasonJökull Tandri Ámundason Dalverjagoði var á fundi lögréttu kvöldið 11. september kjörinn sem nýr staðgengill Allsherjargoða. Hann hlaut vígslu sem Dalverjagoði 2023.  Jökull Tandri er matreiðslu- og framreiðslumeistari að mennt með mikla reynslu úr framkomu og félagsstarfi. Hann er 35 ára gamall og er yngsti goði Ásatrúarfélagsins.

Alda Vala Ásdísardóttir Hvammverjagoði var áður í hlutverki staðgengils en hún lét af starfi fyrr í sumar að eigin ósk og er henni þakkað fyrir vel unnin störf