Viðburðir Ásatrúarfélagsins í desember
- desember – Landvættablót í öllum landsfjórðungum kl. 18:00
- Dalverjagoði helgar blót í Víkurfjöru.
- Þingskálagoði helgar blót við Óslandstjörn á Höfn í Hornafirði.
- Haukadalsgoði helgar blót í Bolungarvík við Völuspárskiltið.
- Þveræingagoði helgar blót á Hamarkotstúni á Akureyri.
- Landvættablót í Almannagjá á Þingvöllum.
Nánari upplýsingar um landvættablótin í eru hér á vefsíðunni undir liðnum dálknum „Fréttir“.
Fyrirlestrar í hofinu í Öskjuhlíð
- 13. desember – Stefán Pálsson heldur erindi um útgáfusögu Goðheimabókanna.
- 14. desember – Ása Hlín Benediktsdóttir kynnir bókina Hallormsstaðaskógur. Einnig verður jólaföndur fyrir börnin ásamt heitu kakó og piparkökum.
- 20. desember – Dagrún Ósk Jónsdóttir og Jón Jónsson, þjóðfræðingar á Ströndum, rifja upp næstum því gleymdar sögur um íslensku jólafólin.
Nánari upplýsingar um fyrirlestra eru hér á vefsíðunni undir liðnum dálknum „Fréttir“.
- desember – Jólablót Ásatrúarfélagsins
- Jólablót á Akranesi kl. 18:00 í Stúkuhúsinu við Byggðasafnið.
- Jólablót í Þingskálum í Hornafirði kl. 14:00.
- Jólablót í Ásheimum í Skagafirði kl. 18:00.
- Jólablót á Ráðhústorginu á Akureyri kl. 18:00.
- Jólablót við Ferjusteina við Lagarfljótsbrú á Fljótdalshéraði kl. 18:00.
- Jólablót í Öskjuhlíð í Reykjavík kl. 18:00. Í kjölfarið verður slegið til veislu. (Miðasala í veislu og nánari upplýsingar síðar).
Ítarlegar upplýsingar um jólablótin berast er nær dregur.
Fastir liðir
- Handverkskvöld og opin hús verða á sínum stað en raskast örlítið vegna anna í desember. Fylgist með á facebook eða www.asatru.is.
