Skip to main content

Vorjafndægrablót á þremur stöðum á landinu 20. mars næstkomandi

By March 13, 2026March 16th, 2026Fréttir

Vorjafndægrablót Ásatrúarfélagsins verða haldin á fjórum stöðum á landinu 20. mars næstkomandi.

Þau verða sem hér segir:

Kl. 18:00, í fjöru við Helguhól í Hvalfirði, þar sem vel sést til Geirshólma.

Á jafndægrum að vori helgar Leirárgoði blót í fjörunni til heiðurs Helgu Jarsldóttur sem segir frá í Harðar sögu Hólmverja.

Veitingar verða í boði Ásatrúarfélagsins að Bjarteyjarsandi að blóti loknu.

Verið öll velkomin.

—–

Föstudaginn 20.mars verður vorjafndægrum fagnað með blóti í Óslandi á Höfn í Hornafirði. Blótað verður kl 17:00 en ekki kl 19:00 eins og áður var auglýst. Guðlaug Elísabet helgar blótið. Allir velkomnir!

—–

Vorjafndægrablót verður haldið í Hlésey kl. 18:00.

Vinsamlega tilkynnið þátttöku inn á facebook: Hléseyjarblót eða með að senda póst á johanna@asatru.is

—–

Dalverjagoði helgar blót kl. 18:00 í Ásgarði á Hvolsvelli (Sjá kort).

Í kjölfar blóts verður kaffi í Valhöll (Sjá kort).

—–

Blótin okkar eru opin öllum.