Skip to main content

Sigurblót (og jarðarblót) á landinu 22. og 23. apríl 2026.

By April 14, 2026Fréttir

Sumarið nálgast og verður sumardeginum fyrsta fagnað víða á landinu.

Tvö blót skv. dagatali falla niður, en þau eru Sigurblótið í Ásheimum í Skagafirði og Sigurblótið í Þingskálum í Hornafirði.

Það er hins vegar nóg um að vera og verða eftirfarandi blót haldin 22. og 23. apríl næstkomandi:

————————————————————————–

  1. apríl –

Jarðarblót við gróðrarstöðina Þöll í Hafnafirði.

Jarðarblót á degi Jarðar. Mæting í gróðrarstöðina Þöll við Kaldárselsveg, gengið verður af stað á blótstað í skógræktinni klukkan 18:00.

Dalverjagoði helgar stað og stund.

Kaffi og samvera í Gróðrarstöðinni að blóti loknu. Opið almenningi og öll velkomin.

————————————————————————–

  1. apríl –

Sigurblót í Öskjuhlíð í Reykjavík.

Sigurblót verður haldið 23. apríl, kl. 14:00 í Hofi félagsins í Öskjuhlíð.

Víkingafélagið Rimmugýgur bregður á leik, grillar pylsur og boðið verður upp á kaffi og ávexti.

Blaðrarinn mætir og útbýr blöðrudýr fyrir börnin sem fá einnig sumargjöf frá félaginu.

——

Sigurblót við Blöndalsbúð á Fljótsdalshéraði.

Sigurblót ásatrúarmanna fer fram sumardaginn fyrsta, 23. apríl, við Blöndalsbúð í Eyjólfsstaðaskógi og hefst kl. 17:00.

Goðapilsur verða grillaðar á eld pönnu goðans eins og venjulega. Fólk mæti með það úr búi sínu sem hverjum og einum hentar að hafa með kaffi eða á grillið.

Freysgoði helgar blótið.

——

Sigurblót á Hamarkotstúni á Akureyri.

Sigurblótið á Akureyri er haldið á Hamarkotstúni sumardaginn fyrsta, þann 23. apríl klukkan 14:00.

Blótið er sérstaklega helgað Frey og Freyju, vönum og goðum lífs og frjósemi jarðar.

Sigurður Mar Svínfellingagoði helgar blótið. Öll velkomin.

——

Sigurblót á Leirá í Leirársveit.

Sigurblót á Leirá, föstudaginn 23. apríl kl. 14:00. Hittumst í sumarbyrjun, blótum Frey og fögnum saman.

Þóraldi mælti: Þat er yðr satt at segja, konungr, ef ek skal segja sem er, at inn um Þrándheim er náliga alt fólk alheiðit í átrúnaði, þótt sumir menn sé þar skírðir. En þat er siðr þeirra, at hafa blót á haust ok fagna þá vetri, annat at miðjum vetri, en hit þriðja at sumri, þá fagna þeir sumri.

Kveðjur frá Leirárgoða.