Skip to main content

Siðfesta (heiðin ferming) skólaárið 2026-2027

By August 17, 2026Fréttir

Kæru nemendur, foreldrar og forráðamenn.

Skráning í siðfestufræðslu Ásatrúarfélagsins fyrir skólaárið 2026-2027 er hafin. Fræðslan mun fara fram bæði í hofinu í Öskjuhlíð í staðkennslu og á fjarfundum á netinu í fjarkennslu.

Nánari tímasetningar og kennslufyrirkomulag verður auglýst síðar.

Við biðjum því foreldra og forráðamenn að fylgjast vel með pósthólfinu sínu en við munum senda tilkynningar út með tölvupósti.

Hér eru nánari upplýsingar um siðfestuna okkar:
https://asatru.is/sidfesta/

Hér er svo beinn hlekkur á skráningarblaðið:
https://docs.google.com/forms/u/2/d/e/1FAIpQLSdwELAz1wWnS6ks-k9tz0lRryhRPd8ja3Y01HjBX6AXPbTqpw/viewform?usp=publish-editor

Ef einhverjar spurningar vakna þá er hægt að senda tölvupóst á skrifstofa@asatru.is eða hringja í okkur í síma 861-8633.

Hlökkum til að sjá og heyra í ykkur.

Skrifstofa Ásatrúarfélagsins.