Haustblót ásatrúarfólks á Austurlandi fer fram í Jórvík í Breiðdal, laugardaginn 19. september kl. 14:00.
Til að komast á blótsstað er beygt af þjóðveginum í Breiðdal (Breiðdals- og Skriðdalsvegur) upp afleggjarann að Jórvík (merkt við þjóveginn) en blótsstaður er hægra meginn við afleggjarann tæplega 600 metra frá þjóðvegi.
Baldur, Freysgoði, helgar blótið.
Að blóti loknu er boðað til þings með heimamönnum þar sem boðið verður upp á veitingar. Nánari staðsetning verður kynnt að blóti loknu.
Eins og endranær eru öll velkomin á blót en minnt er á að allar slíkar samkomur eru undir berum himni og verður geta verið alls konar. Klæðum okkur því eftir veðri.

