Skip to main content
Category

Viðburðir

Völvublót á Hólmahálsi

By Viðburðir

Hið árlega völvublót verður haldið við völvuleiðið á Hólmahálsi þann 16. ágúst næstkomandi og mun Baldur Freysgoði helga blótið um kl. 15:00.

Öll áhugasöm um voran sið eru velkomin en minnt er á að allar athafnir fara fram utandyra og því er fólk beðið um að klæða sig eftir veðri.

Eftir blótið verður svo boðið í kaffi og spjall á Reyðarfirði en nánari staðsetning verður útlistuð við blótslok. Blótsgestir eru beðnir um að koma með eitthvað smávegis með kaffinu en í boði verður kaffi, kakó, mjólk og sykur (já og örugglega eitthvað gott te).

Síðsumarblót á Sveinseyri á Tálknafirði

By Viðburðir

Síðsumarblót verður haldið fimmtudaginn 13. ágúst kl. 20:00 á Sveinseyri á Tálknafirði.

Elfar Logi Hannesson Haukadalsgoði helgar blótið sem verður haldið hátíðlegt til að fagna uppskeru manna sem náttúru.

Að blóti loknu verður boðið uppá kaffi og vöflur í Gamla bænum á Sveinseyri.

Öll velkomin.

 

Njarðarblót í Hveragerði 26. júlí

By Viðburðir

Árlegt Njarðarblót verður nú haldið í fimmtánda sinn og hefst það kl. 13 við Fossflöt í Hveragerði. Haukur Bragason helgar blótið, segir frá Nirði og flytur stutta hugvekju um náttúru og menn.

Einhverjar veitingar verða í boði og eru allir velkomnir, félagsmenn sem aðrir.

 

Dvergablót við Dverghamra 22. júlí

By Viðburðir

Dverghamrar eru í um 10 mínútna akstursfjarlægð frá Kirkjubæjarklaustri, austur eftir þjóðveginum.

Haukur Bragason helgar blótið og ræðir um bæði dvergana sem þar mögulega búa og dverga í norrænni goðafræði.

Blótið hefst kl. 20 og eru allir velkomnir, félagsmenn sem aðrir.

Hálendisblót við Laugarfell sunnudaginn 12. júlí kl. 14:00

By Viðburðir

Þá er komið að hinu árlega hálendisblóti sem að þessu sinni verður við Laugarfell (austan við Snæfell).

ATH. Breytta dagsetningu miðað við dagatal Ásatrúarfélagsins. Blótið verður sunnudaginn 12. júlí kl. 14:00 en ekki 11. júlí eins og stendur í dagatali.

Nánari (nákvæm) staðsetning kemur inn síðar í vikunni en tryggt verður að allir eigi nokkuð auðvelt aðgengi- eins langt og það nær inni á hálendi Íslands.

Endilega takið daginn frá og eins og alltaf eru blót opin öllum og öll velkomin.

Baldur Pálsson Freysgoði helgar blótið.