Skip to main content

Fyrirlestur í hofinu: Hefðbundin minnistækni í fornsögum og kvæðum

By September 21, 2026Viðburðir

Fyrirlestraröð Ásatrúarfélagsins hefst á ný laugardaginn 26. september.

Húsið opnar kl. 14:00 og erindið hefst um kl. 14:30. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti.

Í tilefni af útkomu bókar Gísla Sigurðssonar rannsóknarprófessors við Árnastofnun, Reflections of Traditional Oral Memory in the Eddas and Sagas, sem kom út á dögunum hjá De Gruyter, ætlar Gísli að fjalla um hvernig hugmyndir um hefðbundna minnistækni geta nýst til að skilja það munnlega þekkingarkerfi sem fornsögurnar, kvæðin og þar með goðafræðin byggðust á. Bókin er aðgengileg í opnum aðgangi, sem áhugasamir geta kynnt sér hér: https://doi.org/10.1515/9783112248492

Í þessu samhengi leika örnefni og landslagið hér á jörðu niðri og ekki síður það sem blasir við á himni lykilhlutverk við að halda utan um sagna- og hugmyndaheiminn. Örnefni nær og fjær geta kveikt sögu um atburð eða einstaklinga sem tengjast einhverjum öðrum með ættar- og fjölskylduböndum. Atburðirnir eru tímasettir í tengslum við veldistíma konunga – og kjörtímabil lögsögumanna – sem hægt var að nota til að fella hið hefðbundna tímatal að Anno Domini kerfi kirkjunnar 2-3 aldir aftur í tímann. Skáldin kunnu kvæðin um konunga og höfðingja, og sögurnar sem þeim tengdust, og lögsögumennirnir þekktu sögur af deilum og uppákomum sem reynt hafði verið að leysa með lögbundnum ferlum.

Í þessu samhengi verða sögurnar, hirðkvæðin og hið goðsögulega myndmál sem þau byggjast á að skipulögðu þekkingarkerfi sem máttarstólpar hinnar formlegu munnlegu hefðar báru ábyrgð á: skáldin, goðarnir og lögsögumennirnir.

Fyrirlesturinn er öllum opinn og best að mæta tímanlega til að tryggja sér sæti.