Á næsta Eddukvöldi lesum við Baldurs drauma, sem einnig er þekkt sem Vegtamskviða. Kvæðið er með styttri eddukvæðum.
Þegar Baldur dreymir illa ríður Óðinn til heljar að leita fregna og Óðinn kemst að því hvaða örlög bíða Baldurs.
Við hefjum kvöldið kl. 20:00 í hofinu okkar í Öskjuhlíð.
Dr. Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík leiðir umræðuna.
Allir velkomnir.

