Næsta Eddukvöld verður miðvikudaginn 11. Nóvember kl. 20 í hofinu okkar í Öskjuhlíð, en efni kvöldsins er mjög ungt eddukvæði, Hrafnagaldur Óðins.
Hrafnagaldur Óðins, einnig nefnt Forspjallsljóð, er eddukvæði sem segir frá því þegar Óðinn sendir Heimdall, Loka og Braga til að leita svara hjá Iðunni. Kvæðið er varðveitt í pappírshandritum frá 17. öld og síðar, en er ekki í Konungsbók eddukvæða. Það var fyrst prentað árið 1787 en síðar oftast undanskilið útgáfum eddukvæða vegna efasemda um aldur þess.
Kvæðið er almennt nú tímasett með málsögulegum og bragfræðilegum rökum tímasett það til fyrri hluta 17. aldar.
Dr. Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík leiðir umræðuna.
Allir velkomnir!

