Eddukvöld verður haldið miðvikudagskvöldið 25. Nóvember kl. 20 og munum við lesa Grottarsöng.
Grottasöngur er eddukvæði undir fornyrðislagi, varðveitt í Skáldskaparmálum Snorra-Eddu, meðal annars í Konungsbók Snorra-Eddu (GKS 2367 4to) frá um 1325 og Codex Trajectinus, en þótt kvæðið hafi oft verið talið gamalt þá hefur Vésteinn Ólason nýlega fært rök fyrir því að það sé líklega ort skömmu fyrir eða um 1200.
Kvæðið fjallar um gýgjurnar Fenju og Menju, sem Fróði Danakonungur heldur í ánauð og neyðir til að mala gull, frið og velmegun í töfrakvörninni Grotta, án þess að veita þeim næga hvíld. Þær hefna sín með því að mala her gegn Fróða, sem verður honum að bana og bindur enda á hinn svokallaða Fróðafrið.
Dr. Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík leiðir umræðuna.
Allir velkomnir!

