Landvættablót verða haldin víða á Íslandi 1. desember næstkomandi. Hér er listinn yfir blót, staðsetningar og þá sem helga stað og stund:
———-
———-
Landvættablót verður haldið við Garðskagavita til heiðurs Bergrisanum. Safnast verður saman á blótstað rétt fyrir kl. 18:00, blót hefst stuttu eftir.
Léttar kaffiveitingar í Röstinni eftir blóthald.
Haukur Bragason Lundarmannagoði og Jökull Tandri Ámundason Dalverjagoði helga stað og stund.
———-
———-
Blót Drekans fer fram við minnismekið á Óslandi, Höfn í Hornafirði og hefst kl. 18:00.
Í kjölfar athafnar verður boðið í súpu og léttmeti. Öll velkomin. Minnum á að blótið er utandyra og biðjum við því öll að klæða sig eftir veðri.
Baldur Pálsson Freysgoði og Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir Þingskálagoði helga blót.
———-
———-
Vættablót Griðungsins á Vesturlandi verður haldið kl. 18:00 á Elínarhöfða við Akranes.
Anna Leif Auðar Elídóttir Leirárgoði helgar blótið.
———-
———-
Landvættablót helgað Gamminum verður á Hamarkotstúni, Akureyri, kl. 18:00.
Boðið verður upp á léttar veitingar að blóti loknu. Öll velkomin.
Ragnar Elías Ólafsson Þveræingagoði og Sigurður Mar Halldórsson Svínfellingagoði helga blótið
———-
———-
Landvættablót Griðungsins verður haldið í Bolungarvík við Völuspáskiltið kl.18.00.
Boðið verður uppá smákökur og svaladrykk að blótslokum.
Elfar Logi Hannesson Haukadalsgoði helgar blót.
———-
———-
Landvættablótið verður haldið á Þingvöllum kl. 18:00. Við ætlum að hittast á Valhallarreitnum u.þ.b. fimmtán mínútum fyrir blót.
(Smellið hér fyrir kort af Valhallarflöt)
Boðið verður upp á heitt kakó og piparkökur eftir blót.
Alda Vala Ásdísardóttir Hvammverjagoði helgar blótið.

