Á næsta fundi leshópsins munum við lesa Hymiskviðu, þar sem meðal annars segir frá tilraun Þórs til að veiða miðgarðsorminn, en kvæðið er annars óvenjulegt í hópi eddukvæða fyrir skrautlega notkun sína á kenningum.
Það er ókeypis aðgangur og allir velkomnir en fundurinn hefst kl. 20:00.
Dr. Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík leiðir umræðuna.

