Skip to main content

Allsherjarþing 2026 – framboð til setu í lögréttu

Allsherjarþing Ásatrúarfélagsins 2026 verður haldið í hofi félagsins að Menntasveigi 15 í Öskjuhlíð laugardaginn 31. október kl. 14:00. Allir í félagatali Ásatrúarfélagsins fimm dögum fyrir allsherjarþing eiga rétt til setu á þinginu og hafa þar málfrelsi og tillögurétt. Atkvæðisréttur og kjörgengi miðast við 18 ára aldur.

Samkvæmt 29. grein starfsreglna Ásatrúarfélagsins skal í ár kosið um þrjá fulltrúa í lögréttu til tveggja ára, tvo varamenn til eins árs, tvo skoðunarmenn reikninga til eins árs og tvo fulltrúa kjörnefndar til eins árs. Framboðsfrestur til stjórnar félagsins og í aðrar stöður sem kosið er um undir 5. fundarlið rennur út viku fyrir allsherjarþing, laugardaginn 24. október kl. 14:00. Undantekning frá þessu er að þeir sem bjóða sig fram til stjórnar en ná ekki kjöri geta á þinginu boðið sig fram sem varamenn í stjórn.

Til að bjóða sig fram skal skrá sig hér.

Ein lagabreytingartillaga barst og verður lögð fram af lögréttu. Tillagan er svohljóðandi: Að orðalagi í 4. gr. starfsreglna um höfuðblót verði breytt svo að „hið fjórða á sumarsólstöðum“ verði „hið fjórða á þórsdegi í tíundu viku sumars“.

Dagskrá allsherjarþings 2026:

  1. Skýrsla lögréttu borin upp til umræðu og staðfestingar.
  2. Reikningar lagðir fram til umræðu og staðfestingar.
  3. Lagabreytingar og aðrar tillögur.
  4. Kosning í lögréttu.
  5. Kosning skoðunarmanna reikninga, í nefndir og í aðrar trúnaðarstöður.
  6. Önnur mál.