Skip to main content

Allsherjarþing 2026 – umfjöllun

By November 3, 2026Fréttir

Allsherjarþing Ásatrúarfélagsins var haldið laugardaginn 31. október í hofi Ásatrúarfélagsins.

Lögð var fram skýrsla lögsögumanns þar sem farið var yfir starfsemi félagsins síðasta starfsár. Jafnframt fór gjaldkeri yfir ársreikning félagsins og voru báðar skýrslur samþykktar einróma.

Kosningar í lögréttu voru spennandi þar sem margir frambærilegir voru í kjöri.

Niðurstaðan var sú að Ása Hlín Benediktsdóttir, Guðlaugur Bragason og Sigríður Sigþórsdóttir hlutu kjör í aðalstjórn. Emil Pálsson og Unnar Reynisson voru kjörnir sem varamenn.

Lögrétta samanstendur því af eftirfarandi:

Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík – lögsögumaður (kosin 2025 til tveggja ára)
Ása Hlín Benediktsdóttir – staðgengill lögsögumanns (kosin 2026 til tveggja ára)
Guðlaugur Bragason – ritari (kosinn 2026 til tveggja ára)
Jónas Eyjólfsson – gjaldkeri (kosinn 2025 til tveggja ára)
Sigríður Sigþórsdóttir – meðstjórnandi (kosin 2026 til tveggja ára)

Hilmar Örn Hilmarsson – Allsherjargoði (í veikindaleyfi)
Sigurður Mar Halldórsson – Svínfellingagoði (fulltrúi goða í lögréttu)

—

Emil Pálsson – 1. varamaður í stjórn (kosinn 2026 til eins árs)

Unnar Reynisson – 2. varamaður í stjórn (kosinn 2026 til eins árs)

Alda Vala Ásdísardóttir er staðgengill allsherjargoða (skipuð af lögréttu í september sl.)