Eftirfarandi breytingartillaga var lögð fram á allsherjarþingi 31. október 2026:
Í 4. gr. starfsreglna um trúarathafnir stendur eftirfarandi:
„Fjögur höfuðblót skulu haldin árlega og fylgja þau hinu forna missera- og vikutali. Hið fyrsta skal haldið fyrsta vetrardag, annað á jólum um vetrarsólhvörf, hið þriðja á sumardaginn fyrsta og hið fjórða á sumarsólstöðum á Þingvöllum.”
Lagt er til breytinga á orðalagi í eftirfarandi:
„Fjögur höfuðblót skulu haldin árlega og fylgja þau hinu forna missera- og vikutali. Hið fyrsta skal haldið fyrsta vetrardag, annað á jólum um vetrarsólhvörf, hið þriðja á sumardaginn fyrsta og hið fjórða á þórsdegi í 10. viku sumars á Þingvöllum.”
Breytingartillagan var samþykkt einróma.
