Skip to main content

Áminning – Sigurblót 23. apríl

By April 22, 2026Fréttir

Við minnum á Sigurblót víða á landinu á morgun sumardaginn fyrsta. Þau verða sem hér segir:

————————————————————————–

Sigurblót í Öskjuhlíð í Reykjavík.

Sigurblót verður haldið 23. apríl, kl. 14:00 í Hofi félagsins í Öskjuhlíð.

Víkingafélagið Rimmugýgur bregður á leik, grillar pylsur og boðið verður upp á kaffi og ávexti.

Blaðrarinn mætir og útbýr blöðrudýr fyrir börnin sem fá einnig sumargjöf frá félaginu.

——

Sigurblót við Blöndalsbúð á Fljótsdalshéraði.

Sigurblót ásatrúarmanna fer fram sumardaginn fyrsta, 23. apríl, við Blöndalsbúð í Eyjólfsstaðaskógi og hefst kl. 17:00.

Goðapilsur verða grillaðar á eld pönnu goðans eins og venjulega. Fólk mæti með það úr búi sínu sem hverjum og einum hentar að hafa með kaffi eða á grillið.

Freysgoði helgar blótið.

——

Sigurblót á Hamarkotstúni á Akureyri.

Sigurblótið á Akureyri er haldið á Hamarkotstúni sumardaginn fyrsta, þann 23. apríl klukkan 14:00.

Blótið er sérstaklega helgað Frey og Freyju, vönum og goðum lífs og frjósemi jarðar.

Sigurður Mar Svínfellingagoði helgar blótið. Öll velkomin.

——

Sigurblót á Leirá í Leirársveit.

Sigurblót á Leirá, föstudaginn 23. apríl kl. 14:00. Hittumst í sumarbyrjun, blótum Frey og fögnum saman.

Þóraldi mælti: Þat er yðr satt at segja, konungr, ef ek skal segja sem er, at inn um Þrándheim er náliga alt fólk alheiðit í átrúnaði, þótt sumir menn sé þar skírðir. En þat er siðr þeirra, at hafa blót á haust ok fagna þá vetri, annat at miðjum vetri, en hit þriðja at sumri, þá fagna þeir sumri.

Kveðjur frá Leirárgoða.