Skip to main content
All Posts By

skrifstofa

Opnir fyrirlestrar 21. janúar og 4. febrúar næstkomandi.

Eftir Fréttir
Opið hús 21. janúar.
 
Þorvaldur Friðriksson fyrrverandi fréttamaður mun flytja erindi á opnu húsi laugardaginn 21. janúar.
 
Heiti erindis:
“Keltar: Uppruni Íslendinga. Áhrif Kelta á
tungu og menningu Íslendinga.”
 
Þorvaldur Friðriksson er stúdent frá MR 1972. Hann lagði stund á sagnfræði og bókmenntir við Háskóla Íslands. Þá lærði hann fornleifafræði í Svíþjóð við háskólana í Gautaborg og Skokkhólmi. Rannsakaði keltnesk áhrif í fornleifum á Íslandi og skrifaði BC ritgerði í fornleifafræði 1982 um keltneska húsgerð sem er að finna á Íslandi. Bókin Keltar: Áhrif á íslenska tungu og menningu kom út eftir hann á árinu 2022.
 
 
 
Opið hús 4. febrúar.
 
Sverrir Jakobsson prófessor í miðaldasögu við Háskóla Íslands
mun flytja erindi á opnu húsi laugardaginn 4. febrúar.
 
Heiti erindis:
„Hvernig skilgreindu Íslendingar heiðni á 13. og 14. öld?“
 
Sverrir útskrifaðist frá Menntaskólanum við Sund árið 1990, lauk svo B.A.-prófi við Háskóla Íslands 1993 og M.A.-prófi frá Háskólanum í Leeds í Bretlandi. Lauk svo doktorsprófi frá HÍ 2005. Sverrir var aðjunkt í sagnfræði við Háskóla Íslands árin 2010-2013, lektor 2013-2014 og hefur starfað sem prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands frá árinu 2014 . Sverrir hefur skrifað fjölda bóka og fræðigreina.

Þorrablótsathöfn 20. janúar

Eftir Fréttir
Ásatrúarfélagið verður með þorrablótsathöfn 20. janúar næstkomandi og efnir til samskotaveislu á eftir fyrir þá sem hafa áhuga.
Athöfnin hefst kl 19:00.
Um er að ræða veislu þar sem gestir mæta sjálfir með mat á hlaðborð á meðan félagið leggur til súrmat.
Því miður er mjög takmarkað sætamagn í boði þar sem við verðum í salnum okkar í Öskjuhlíðinni. Það verða því sæti fyrir þá fyrstu sem panta.
Til að staðfesta komu hafið samband í síma 861-8633 og tilkynnið fjölda og hvaða mat þið hyggist koma með. Síminn er opinn milli kl 13-16 á virkum dögum.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Ásatrúarfélagið.
May be an image of outdoors

Opið hús laugardaginn 14.01.23!

Eftir Fréttir
Opið hús á morgun laugardaginn 14.01.23!
Loksins er orðið greiðfært að hofinu svo hægt er að heimsækja okkur akandi fyrir þá sem vilja.
Húsið opnar kl 14 og lokar 16 og eru öll velkomin. Kaffi á könnunni að venju!
May be an image of map

Eddukvöld 11.01.23!

Eftir Fréttir
Eddukvöld í kvöld kl 20:00! Kaffi á könnunni eins og alltaf og öll velkomin. Best að koma gangandi að hofinu frá Nauthóli þar sem enn er ófært að keyra niður hlíðina. Sjá kort;
May be an image of map