Vegna góðrar mætingar þá ætlum við aftur að hefja leika snemma eða kl. 18:00 og fram eftir kvöldi. Spilurum er frjálst að mæta á þeim tíma sem hentar.
Á staðnum verður borðspilasafn Ásatrúarfélagsins, nördagoðarnir Jökull Tandri og Haukur og eitthvað af nasli og tilheyrandi.
Öll velkomin, einsömul eða með vini, með snakk í púkkið eða án þess, með vel valin borðspil úr eigin safni eða án spila.

