Aldrei hefur áður verið haldið Bragablót en á því verður gerð bragarbót á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember. Blótið verður haldið við hof Ásatrúarfélagsins í Öskjuhlíð og hefst kl. 20:00. Haukur Bragason Lundarmannagoði helgar blótið.
Kári Pálsson flytur nokkur kvæðalög og gestir eru hvattir til að flytja stutt erindi sem gera íslenskri tungu hátt undir höfði. Þetta má til dæmis gera með því að lesa stuttan textabút, erindi úr ljóði eða annað sambærilegt, úr eigin smiðju eða frá skáldi í uppáhaldi. Gengið verður hringinn og hver sem vill flytur sitt – utandyra ef veður er skaplegt en annars inni í hofi að blóti loknu.
Allir velkomnir og engu máli skiptir hvort fólk talar íslensku sem fyrsta eða annað mál eða hvort það vill bara hlusta á hana. Heitt kakó, spjall og nærandi samvera í vetrarmyrkrinu.

