Skip to main content
Category

Viðburðir

Opið hús fellur niður vegna allsherjarþings laugardaginn 31. október

By Fréttir, Viðburðir

Við minnum á að opna húsið fellur niður á morgun laugardaginn 31. október vegna allsherjarþings.

Allsherjarþing verður haldið í hofinu okkar í Öskjuhlíð og hefst kl. 14:00. Smellið hér fyrir kort af leiðum að hofi.

Dagskrá allsherjarþings 2026:

  1. Skýrsla lögréttu borin upp til umræðu og staðfestingar.
  2. Reikningar lagðir fram til umræðu og staðfestingar.
  3. Lagabreytingar og aðrar tillögur.
  4. Kosning í lögréttu.
  5. Kosning skoðunarmanna reikninga, í nefndir og í aðrar trúnaðarstöður.
  6. Önnur mál

Kosningarétt hafa allir mættir meðlimir félagsins sem skráðir voru a.m.k. fimm dögum fyrir allsherjarþing.

Við biðjum fundargesti um að framvísa skilríkjum þegar mætt er á fundarstað

Allsherjarþing laugardaginn 31. október í hofinu í Öskjuhlíð

By Viðburðir

Eftirfarandi framboð til lögréttu, stjórnar Ásatrúarfélagsins, bárust áður en framboðsfrestur rann út. Vakin er athygli á að þeim sem buðu sig fram til lögréttu en ná ekki kjöri er heimilt að bjóða sig fram sem varamenn í kjölfar kosningar aðalmanna.

Framboð til lögréttu

Ása Hlín Benediktsdóttir
Guðlaugur Bragason
Hugrún Lilja Jóhannsdóttir
Pernille Ahlmann Jensen
Sigríður Sigþórsdóttir
Unnar Þór Reynisson

Framboð sem varamenn

Ása Hlín Benediktsdóttir
Emil Pálsson
Þorri Líndal Guðnason

Kosið er um þrjú sæti í lögréttu og tvo varamenn. Allsherjarþing verður haldið í hofi félagsins, Menntasveigi 15, laugardaginn 31. október kl. 14:00. Kosningarétt hafa allir mættir meðlimir félagsins sem skráðir voru a.m.k. fimm dögum fyrir allsherjarþing.

Allsherjarþing Ásatrúarfélagsins 2026 – Framboðsfrestur í nánd

By Fréttir, Viðburðir

Við minnum á að allsherjarþing Ásatrúarfélagsins 2026 verður haldið í hofi félagsins að Menntasveigi 15 í Öskjuhlíð laugardaginn 31. október kl. 14:00. Allir í félagatali Ásatrúarfélagsins fimm dögum fyrir allsherjarþing eiga rétt til setu á þinginu og hafa þar málfrelsi og tillögurétt. Atkvæðisréttur og kjörgengi miðast við 18 ára aldur.

Meira um þingið hér.

Við hvetjum áhugasama félagsmenn sem vilja ljá félaginu krafta sína að bjóða sig fram til lögréttu eða í nefndir (kjörnefnd og skoðunarmenn reikninga). Frestur til framboðs í lögréttu rennur út laugardag næstkomandi kl. 14:00.

Til að bjóða sig fram skal skrá sig hér.

Borðspilakvöld 21. október

By Viðburðir

Næsta borðspilakvöld verður núna á miðvikudaginn í hofinu okkar í Öskjuhlíð. Vegna góðrar mætingar þá ætlum við aftur að opna húsið kl. 17:00 og hafa opið fram eftir kvöldi. Spilurum er því frjálst að mæta er hentar.

Á staðnum verður borðspilasafn Ásatrúarfélagsins, nördagoðarnir Jökull Tandri og Haukur og eitthvað af nasli og tilheyrandi.
Öll velkomin, einsömul eða með vini, með snakk í púkkið eða án þess, með vel valin borðspil úr eigin safni eða án spila.

Veturnáttablót á landinu fyrsta vetrardag 24. október

By Viðburðir

Veturnáttablót verða helguð á nokkrum stöðum á landinu fyrsta vetrardag 24. október.

Nánar um blótin:

—————

Veturnáttablót í Öskjuhlíð 24. október – Hvammverjagoði Alda Vala Ásdísardóttir helgar blótið sem hefst kl. 19:00. Teitur Magnússon tónlistarmaður tekur nokkur lög.

Í kjölfar blóts ætlum við að fara inn í samkomusal og njóta veitinga saman. Um er að ræða Pálínuboð þar sem félagið býður grunn að veitingum sem gestir bæta svo í. Til að skrá sig þarf að senda tölvupóst á skrifstofa@asatru.is og láta vita hve margir mæta (ásamt börnum) og hvaða mat þið ætlið að koma með.

Hér er hægt að sjá það sem nú þegar er komið á borðið.

 

Meira um blótið og Pálínuboðið hér.

—————

—————

Vökudagablót á Safnasvæðinu á Akranesi 24. október – Anna Leif Auðar Elídóttir Leirárgoði helgar blótið sem hefst kl. 14:00.

Eftir athöfnina þá verða kaffiveitingar í Stúkuhúsinu.

—————

—————

Veturnáttablót á Vestdalseyri 24. október – Baldur Pálsson Freysgoði helgar blótið sem hefst kl. 16:00.

—————

—————

Veturnáttablót á Hamarkotstúni á Akureyri 24. október – Ragnar Elías Ólafsson Þveræingagoði helgar blótið sem hefst kl. 16:00.

Blótið er helgað Óðni, uppskeru haustsins og öllum þeim lifandi verum sem hverfa til hinnar eilífu hringrásar.

—————

—————

Veturnáttablót á Húsavík 24. október – Sigurður Mar Svínfellingagoði helgar blótið sem hefst kl. 14:00.

Blótið verður helgað á þaki Fosshússins undir kirkjutröppunum. Að blóti loknu verður kaffi og bakkelsi í boði Ásatrúarfélagsins í Gilinu bakaríi þar skammt frá.

—————

—————

Blót Ásatrúarfélagsins eru öllum opin og bjóðum við ykkur því velkomin hvort sem þið eruð félagsmenn eður ei.

Hlökkum til að sjá ykkur

Veturnáttablót í Öskjuhlíð 24. október

By Viðburðir

Veturnáttablót verður haldið á fyrsta vetrardegi 24. október næstkomandi.

Hvammverjagoði Alda Vala Ásdísardóttir helgar blótið sem hefst kl. 19:00. Teitur Magnússon tónlistarmaður tekur nokkur lög.

Um er að ræða Pálínuboð þar sem félagið býður grunn að veitingum sem gestir geta svo bætt í.

Til að skrá sig þarf að senda tölvupóst á skrifstofa@asatru.is.

Þar þarf að koma fram eitt nafn og svo fjöldi fólks sem fylgir viðkomandi. Að auki þarf að koma fram hvaða rétt viðkomandi ætlar sér að koma með um kvöldið. Þá er t.d. hægt að koma með einn aðalrétt eða einn eftirrétt.

Til að forðast að of mikið sé af líkum réttum þá er hægt að smella hér til að sjá hvað er komið á borðið.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Eddukvöld – Grógaldr og Fjölsvinnsmál 14. október (síðasta Eddukvöld til 11. nóvember n.k.)

By Viðburðir

Á næsta Eddukvöldi tökum við fyrir tvö samhangandi kvæði, Grógaldr og Fjölsvinnsmál. Bæði kvæðin fjalla um Svipdag, sem fær verndargaldra frá látinni móður sinni og heldur síðan til Menglaðar, sem bíður hans í víggirtum, yfirnáttúrulegum heimi. Kvæðin eru aðeins varðveitt í ungum handritum og líklega frá 13.–14. öld. Ferðin, prófraunirnar og Menglöð með meyjunum níu hafa verið tengd keltneskum frásögnum um ferðir hetja í annan heim, en bein áhrif eru óviss.

Kvæðin falla að edduhefðinni með goðsögulegu efni, galdri og eins konar gátukeppni, en skera sig jafnframt frá mörgum eldri eddukvæðum með ævintýralegri frásögn, biðilsför og mögulegum keltneskum áhrifum, sem minna fremur á miðaldarómönsur og þjóðsagnaefni. Kvæðið hefur verið flokkað með ævintýrakvæðum undir edduháttum.

Dr. Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík leiðir umræðuna.

Mæting er kl. 20:00 í hofið í Öskjuhlíð.

Við minnum líka á að þetta verður eina Eddukvöldið í október – því seinna Eddukvöld mánaðarins fellur niður vegna ráðstefnu. Næsta Eddukvöld verður því haldið 11. Nóvember og verður auglýst þegar nær dregur.