Á opnu húsi 11. apríl mun Guðmundur Steinn Gunnarsson segja frá háttatali sínu eða tónverkinu Clavis Metrica sem er einskonar háttatal án orða en þar fá hljóðin og mynstrin í braginum að njóta sín.
Um er að ræða tónverk fyrir 4 hljóðfæri sem kom út á plötu nýverið í flutningi Ensemble Adapter. Verkið vinnur lauslega útfrá háttatali Sveinbjörns Beinteinssonar og vinnur óbeint með hrynjandi og flutningsmáta íslensks kvæðasöngs.
Húsið opnar kl. 14:00 og er best að mæta tímanlega til að tryggja sér sæti.

