Skip to main content

Eddukvöld – Völundarkviða

Eddukvöldin hefjast aftur miðvikudaginn 2. september kl. 20:00.

Fyrsta kvæðið sem við tökum fyrir er Völundarkviða en kvæðið er um margt sérstakt. Sögusvið þess er á mörkum goðheima og mannheima, og kvæðið innan Konungsbókar Eddukvæða markar jafnframt skil á milli goðakvæða og hetjukvæða. Þá er sagan af Völundi þekkt í evrópskum miðaldabókmenntum, örnefnum á Englandi, og sem myndefni á rúnasteinum og gripum. Við ætlum því að lesa Völundarkviðu og kynna okkur söguna um Völund smið.

Dr. Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík leiðir umræðuna. Allir velkomnir.

Vinsamlegast hafið með ykkur útgafu eddukvæða, en það er hægt að verða sér út um eintak hér í hofinu á 4.500 kr.