
Fræðsla fyrir siðfestuathafnir Ásatrúarfélagsins hefst að nýju laugardaginn 28. september.
Þegar hafa nokkur ungmenni bókað sig í fræðsluna, en hægt er að gera það með því að hafa samband við Jóhönnu Kjalnesingagoða ánetfanginu johanna@asatru.is eða asatru@asatru.is.
Fræðslan fer fram síðasta laugardag hvers mánaðar og hefst kl 12:00 í Síðumúla 15.
Umsjón með fræðslunni hafa Jóhanna Harðardóttir, Kjalnesingagoði, og Hilmar Örn Hilmarsson, allsherjargoði, og fer hún að mestu leyti fram með stuttum kynningum og opnum umræðum.