Skip to main content

Sigurblót víða um land

Eftir apríl 22, 2025Fréttir

Sumri verður fagnað víða um land á sumardeginum fyrsta og fyrr.

 

Jarðarblót verður haldið 22. apríl kl. 17 hjá gróðrarstöðinni Þöll, Hafnarfirði.

Jökull Tandri Dalverjagoði helgar blótið.

Kaffi og samvera í Gróðrarstöðinni að blóti loknu.

 

Sumarblót verður haldið 23. apríl kl. 19 í Þingskálum við Hornafjörð

Guðlaug Elísabet helgar blótið.

Hressing í Þingskálum að blóti loknu.

 

Sigurblót verður haldið 24. apríl kl. 14 á Leirá
Anna Leif helgar blótið.

 

Sigurblót verður haldið 24. apríl í Ásheimi í Skagafirði, kl. 13.

Árni helgar blótið.

 

Sigurblót verður haldið 24. apríl kl. 17 í Ólafsfirði. á Ósbrekkusandi

Sigurður Mar helgar blótið.

 

Sigurblót verður haldið 24. apríl kl. 18 á Hamrskotstúni á Akureyri.

Ragnar helgar blótið.

 

Sigurblót verður haldið 24. apríl kl. 17 við Blöndalsbúð í Eyjólfsstaðaskógi, á Fljótsdalshéraði.

Baldur Freysgoði helgar blótið.

Að venju mun goði bjóða upp á heitar og nýeldaðar Goða-pylsur að loknu blóti og kaffi og eins og venjulega.
Annars tekur fólk með sér það úr búi sínu sem það vill hafa með kaffinu eða að skella á eldinn.

 

Sigurblót verður haldið 24. apríl, kl. 14 í Hofi félagsins í Öskjuhlíð.

Víkingafélagið Rimmugýgur bregður á leik, grillar víkingapylsur og boðið verður upp á kaffi og ávexti.

Blaðrarinn mætir og útbýr blöðrudýr fyrir börnin sem fá einnig sumargjöf frá félaginu.