Skip to main content

Tilkynning! Dagatalið komið í póst og mikilvægar breytingar að ári!

By April 17, 2026Fréttir

Tilkynning!

Dagatalið var að koma úr prentun og er komið í póst til skráðra félagsmanna þeim að kostnaðarlausu. Við verðum einnig með dagatöl til sölu í hofinu í Öskjuhlíð á 1000 kr. stykkið (meðan birgðir endast).

Þetta er síðasta árið þar sem dagatalið verður sent með þessu sniði, en framvegis verða félagsmenn að óska sérstaklega eftir því að fá dagatalið heimsent.

Best er að opna eftirfarandi hlekk til að lesa nánar um málið og skrá sig svo í kjölfarið á listann sem notaður verður fyrir póstsendinguna að ári.

Hlekkur á upplýsingar og skráningu á póstlistann.

Einnig er hægt að nota QR kóðann sem birtist ykkur á bakhlið nýja dagatalsins og hér með færslunni til að skrá sig á póstlistann.