Goðar Ásatrúarfélagsins fordæma þau ummæli sem kanslari Kaþólsku kirkjunnar viðhafði um samkynhneigð og hinsegin fólk og hafa verið til umræðu í fjölmiðlum síðan í gær.
Goðar félagsins lýsa furðu sinni á því að einstaklingur í forsvari fyrir trú- og lífsskoðunarfélag virðist telja sig hafinn yfir m.a. almenn hegningarlög. Með lögum skal land byggja.
Fjölbreytileiki mannhafsins gerir samfélag okkar betra og það er laga- og siðferðisleg skylda þeirra sem þjónusta landsmenn að taka þeim eins og þeir eru og standa vörð um réttindi þeirra.

