Það verða tvö glæsileg blót um helgina.
Annars vegar er það Gróðurblót að Mógilsá við Esjurætur laugardaginn 30. maí og svo Vorblót í Vopnafirði sunnudaginn 31. maí.
Nánar um blótin:
—–
Gróðurblót að Mógilsá.
Alda Vala Ásdísardóttir Hvammverjagoði helgar blótið og hefst athöfnin kl. 14:00. Í kjölfar athafnar verður grillað og spjallað saman fram eftir degi í fallegu umhverfi.
Nánari staðsetning: Mógilsá er við Þjóðveg 1, innst í Kollafirði. Beygt er af Þjóðveginum við Esjustofu og strax til hægri. Eftir spölkorn á afleggjaranum meðfram tjörninni er heimreiðin að Mógilsá á vinstri hönd.
—–
Vorblót í Vopnafirði.
Baldur Pálsson Freysgoði helgar blótið og hefst athöfnin kl. 16:00. Í kjölfar athafnar verður kaffi og spjall.
Nánari staðsetning: Blótið fer fram við Einbúa sem er við gatnamótin að Skjaldþingsstöðum.
—–
Blótin okkar eru opin öllum.

