Á opnu húsi, laugardaginn 7. nóvember, mun Vilborg Davíðsdóttir þjóðfræðingur og rithöfundur flytja erindi og kynna Vetrarbókina fyrir félagsmönnum og gestum.
Húsið opnar kl. 14 að venju, en fyrirlesturinn hefst um 14:30. Það borgar sig því að mæta tímanlega til að tryggja sér sæti.
Smellið hér til að sjá gönguleiðir að hofinu í Öskjuhlíð.
Vetrarbókin er fjölbreytt, skemmtileg og einstaklega fróðleg bók þar sem dimmasta árstíðin er í brennidepli.
Allt frá landnámi hafa Íslendingar þurft að finna leiðir til að takast á við skammdegið og enn er það mörgum þung raun. En þó að veturinn sé langur og strangur, kaldur og dimmur, er hann líka kynngimagnaður; heiðnar vættir fara á stjá og fornar sögur lifna við.
Vilborg Davíðsdóttir hefur skrifað fjölda vinsælla skáldsagna sem gerast á fyrstu öldum Íslandsbyggðar og býr yfir viðamikilli þekkingu á lífsháttum landnemanna, keltneskra og norrænna. Hér leiðir hún lesendur á fund fortíðar og kannar sagnaheim fyrri alda í leit að því hvað kom formæðrum okkar og -feðrum að gagni í glímunni við íslenskan vetur. Við sögu koma goð og vættir, valkyrjur og völvur, álfar og afturgöngur, að ógleymdri sjálfri Grýlu og keltneskri systur hennar, Cailleach.
Öðrum þræði er Vetrarbókin eins konar leiðarvísir að ýmsum þeim mögnuðu vættum af kvenkyni og valdeflandi „kerlingum“ sem hin opinbera saga hefur varpað á dyr í gegnum tíðina. Hér er Grýla afskrímslavædd og hafin á þann stall sem henni ber, sem vetrargyðja Íslendinga.
Saman við frásögnina fléttar Vilborg þræði úr eigin lífi svo úr verður heillandi ferðalag í gegnum myrkrið, allt frá veturnóttum þar til dag fer loks að lengja á ný.
Hægt verður að kaupa bækur hjá Vilborgu að fyrirlestri loknum.
Félagið býður upp á kaffi og meðlæti.
Allir velkomnir!

