Skip to main content
All Posts By

Ásatrúarfélagið

Fyrirlestur á opnu húsi laugardaginn 8. nóvember

By Fréttir
Á opnu húsi í hofinu okkar í Öskjuhlíð, laugardaginn 8. nóvember, mun Dr. Katelin Parsons fjalla um rannsóknir sínar á Vesturförum og handritum þeirra.
Katelin Parsons stýrir verkefni Árnastofnunar sem ber heitið Í fótspor Árna Magnússonar í Vesturheimi, en verkefnið hófst árið 2015. Þungamiðjan í verkefninu eru íslensk handrit og bréf sem hafa varðveist í Norður-Ameríku hjá afkomendum vesturfara og í söfnum víðs vegar um heimsálfuna. Þar að auki hefur verið hægt að samnýta vettvangsferðir og skrá söguleg bókasöfn sem geyma handrit, bréf og prentaðar bækur. Vefurinn Handrit íslenskra vesturfara, er afrakstur þeirrar vinnu. Sjá: https://vesturheimur.arnastofnun.is/
Það öllum frjálst að mæta og aðgangur ókeypis. Sætaframboð er takmarkað og því er best að mæta tímanlega.
Húsið opnar kl 14:00 en fyrirlesturinn hefst 14:30.

Póstlisti fyrir viðburði félagsins.

By Fréttir

Okkur hefur borist til eyrna að ýmsir félagsmenn séu óvirkir á samfélagsmiðlum og frétti þ.a.l. ekki af viðburðum félagsins í tæka tíð.

Við viljum því bjóða viðkomandi að vera með á póstlista sem verður sendur út á sama tíma og auglýsing viðburða.

Til að skrá sig á póstlistann þá er hægt að senda tölvupóst á netfangið: postlisti@asatru.is

Vinsamlegast látið fylgja fullt nafn.

Þið sem þekkið félagsmenn sem eru fjarri samfélagsmiðlum, megið endilega koma þessum skilaboðum áleiðis.

Allsherjarþing 2025 – stjórnarskipti

By Fréttir
Allsherjarþing Ásatrúarfélagsins var haldið laugardaginn 1. nóvember síðastliðinn.
Ásamt því að fara yfir liðið starfsár voru nýjir fulltrúar kosnir í lögréttu.
Við þökkum fráfarandi stjórnarmeðlimum fyrir starf sitt í þágu félagsins og óskum nýkjörinni lögréttu góðs gengis á komandi starfsári.
Sunnudaginn 2. nóvember þá skipti nýkjörin lögrétta með sér verkum og er skipanin eftirfarandi:
Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík – lögsögumaður
Jónas Eyjólfsson – gjaldkeri
Bjarki Karlsson – ritari
Unnar Reynisson – staðgengill lögsögumanns
Jóhannes Levý – meðstjórnandi
Ásdís Eddu Elvarsdóttir – 1. varamaður í stjórn
Hugrún Lilja Jóhannsdóttir – 2. varamaður í stjórn

Siðfesta námsárið 2025-2026 TILKYNNING

By Fréttir
Við viljum minna á að það er enn hægt að skrá sig í siðfræðslu Ásatrúarfélagsins. Skráning fer fram hér:
Fyrsti tíminn hefst sunnudaginn 16. nóvember næskomandi kl 13:00 í hofinu okkar í Öskjuhlíð. Á sama tíma mun Jóhanna Harðardóttir sjá um fyrsta tímann í fjarkennslu.

Föst kennsla hefst svo eftir áramót og verður kennt á eftirfarandi sunnudögum:

1.tími 18. janúar kl 13:00
2.tími 1. febrúar kl 13:00
3.tími 15. febrúar kl 13:00
4.tími 1. mars kl 13:00
5.tími 15. mars kl 13:00
6.tími 19. apríl. kl 13:00

 

Lokatíminn fer svo fram 31. maí með útivistartíma nemenda og forráðamanna. Dagurinn endar með Gróðurblóti að Mógilsá.
Póstur verður sendur út á morgun á alla sem hafa skráð sig með nánari upplýsingum. Milvægt er að svara þeim pósti til að láta vita hvort nemendur hyggist vera í stað eða fjarkennslu í vetur.