Það verður opið hús hjá okkur laugardaginn 24. október líkt og aðra laugardaga frá kl. 14-16. Svo hefst blótið kl. 19:00!
Endilega kíkið við í kaffi og spjall.
Allir velkomnir.

Það verður opið hús hjá okkur laugardaginn 24. október líkt og aðra laugardaga frá kl. 14-16. Svo hefst blótið kl. 19:00!
Endilega kíkið við í kaffi og spjall.
Allir velkomnir.

Við minnum á að allsherjarþing Ásatrúarfélagsins 2026 verður haldið í hofi félagsins að Menntasveigi 15 í Öskjuhlíð laugardaginn 31. október kl. 14:00. Allir í félagatali Ásatrúarfélagsins fimm dögum fyrir allsherjarþing eiga rétt til setu á þinginu og hafa þar málfrelsi og tillögurétt. Atkvæðisréttur og kjörgengi miðast við 18 ára aldur.
Við hvetjum áhugasama félagsmenn sem vilja ljá félaginu krafta sína að bjóða sig fram til lögréttu eða í nefndir (kjörnefnd og skoðunarmenn reikninga). Frestur til framboðs í lögréttu rennur út laugardag næstkomandi kl. 14:00.
Til að bjóða sig fram skal skrá sig hér.

Næsta borðspilakvöld verður núna á miðvikudaginn í hofinu okkar í Öskjuhlíð. Vegna góðrar mætingar þá ætlum við aftur að opna húsið kl. 17:00 og hafa opið fram eftir kvöldi. Spilurum er því frjálst að mæta er hentar.

Veturnáttablót verða helguð á nokkrum stöðum á landinu fyrsta vetrardag 24. október.
Nánar um blótin:
—————
Veturnáttablót í Öskjuhlíð 24. október – Hvammverjagoði Alda Vala Ásdísardóttir helgar blótið sem hefst kl. 19:00. Teitur Magnússon tónlistarmaður tekur nokkur lög.
Í kjölfar blóts ætlum við að fara inn í samkomusal og njóta veitinga saman. Um er að ræða Pálínuboð þar sem félagið býður grunn að veitingum sem gestir bæta svo í. Til að skrá sig þarf að senda tölvupóst á skrifstofa@asatru.is og láta vita hve margir mæta (ásamt börnum) og hvaða mat þið ætlið að koma með.
Hér er hægt að sjá það sem nú þegar er komið á borðið.
Meira um blótið og Pálínuboðið hér.
—————
—————
Vökudagablót á Safnasvæðinu á Akranesi 24. október – Anna Leif Auðar Elídóttir Leirárgoði helgar blótið sem hefst kl. 14:00.
Eftir athöfnina þá verða kaffiveitingar í Stúkuhúsinu.
—————
—————
Veturnáttablót á Vestdalseyri 24. október – Baldur Pálsson Freysgoði helgar blótið sem hefst kl. 16:00.
—————
—————
Veturnáttablót á Hamarkotstúni á Akureyri 24. október – Ragnar Elías Ólafsson Þveræingagoði helgar blótið sem hefst kl. 16:00.
Blótið er helgað Óðni, uppskeru haustsins og öllum þeim lifandi verum sem hverfa til hinnar eilífu hringrásar.
—————
—————
Veturnáttablót á Húsavík 24. október – Sigurður Mar Svínfellingagoði helgar blótið sem hefst kl. 14:00.
Blótið verður helgað á þaki Fosshússins undir kirkjutröppunum. Að blóti loknu verður kaffi og bakkelsi í boði Ásatrúarfélagsins í Gilinu bakaríi þar skammt frá.
—————
—————
Blót Ásatrúarfélagsins eru öllum opin og bjóðum við ykkur því velkomin hvort sem þið eruð félagsmenn eður ei.
Hlökkum til að sjá ykkur

Það verður opið hús hjá okkur í hofinu í Öskjuhlíð laugardaginn 17. október líkt og aðra laugardaga frá kl. 14-16.
Endilega kíkið við í kaffi og spjall.
Allir velkomnir.
Baldur Pálsson Freysgoði helgaði Heiðarblót í Sænautaseli 3.október s.l.
Hér eru nokkrar myndir frá viðburðinum ásamt myndbandi af Áslaugu Sigurgestsdóttur að kveða í fallegum söng.
Það verður opið hús hjá okkur laugardaginn 10. október líkt og aðra laugardaga frá kl. 14-16.
Endilega kíkið við í kaffi og spjall.
Allir velkomnir.

Veturnáttablót verður haldið á fyrsta vetrardegi 24. október næstkomandi.
Hvammverjagoði Alda Vala Ásdísardóttir helgar blótið sem hefst kl. 19:00. Teitur Magnússon tónlistarmaður tekur nokkur lög.
Um er að ræða Pálínuboð þar sem félagið býður grunn að veitingum sem gestir geta svo bætt í.
Til að skrá sig þarf að senda tölvupóst á skrifstofa@asatru.is.
Þar þarf að koma fram eitt nafn og svo fjöldi fólks sem fylgir viðkomandi. Að auki þarf að koma fram hvaða rétt viðkomandi ætlar sér að koma með um kvöldið. Þá er t.d. hægt að koma með einn aðalrétt eða einn eftirrétt.
Hlökkum til að sjá ykkur.

Á næsta Eddukvöldi tökum við fyrir tvö samhangandi kvæði, Grógaldr og Fjölsvinnsmál. Bæði kvæðin fjalla um Svipdag, sem fær verndargaldra frá látinni móður sinni og heldur síðan til Menglaðar, sem bíður hans í víggirtum, yfirnáttúrulegum heimi. Kvæðin eru aðeins varðveitt í ungum handritum og líklega frá 13.–14. öld. Ferðin, prófraunirnar og Menglöð með meyjunum níu hafa verið tengd keltneskum frásögnum um ferðir hetja í annan heim, en bein áhrif eru óviss.
Kvæðin falla að edduhefðinni með goðsögulegu efni, galdri og eins konar gátukeppni, en skera sig jafnframt frá mörgum eldri eddukvæðum með ævintýralegri frásögn, biðilsför og mögulegum keltneskum áhrifum, sem minna fremur á miðaldarómönsur og þjóðsagnaefni. Kvæðið hefur verið flokkað með ævintýrakvæðum undir edduháttum.
Dr. Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík leiðir umræðuna.
Mæting er kl. 20:00 í hofið í Öskjuhlíð.
Við minnum líka á að þetta verður eina Eddukvöldið í október – því seinna Eddukvöld mánaðarins fellur niður vegna ráðstefnu. Næsta Eddukvöld verður því haldið 11. Nóvember og verður auglýst þegar nær dregur.

Allsherjarþing Ásatrúarfélagsins 2026 verður haldið í hofi félagsins að Menntasveigi 15 í Öskjuhlíð laugardaginn 31. október kl. 14:00. Allir í félagatali Ásatrúarfélagsins fimm dögum fyrir allsherjarþing eiga rétt til setu á þinginu og hafa þar málfrelsi og tillögurétt. Atkvæðisréttur og kjörgengi miðast við 18 ára aldur.
Samkvæmt 29. grein starfsreglna Ásatrúarfélagsins skal í ár kosið um þrjá fulltrúa í lögréttu til tveggja ára, tvo varamenn til eins árs, tvo skoðunarmenn reikninga til eins árs og tvo fulltrúa kjörnefndar til eins árs. Framboðsfrestur til stjórnar félagsins og í aðrar stöður sem kosið er um undir 5. fundarlið rennur út viku fyrir allsherjarþing, laugardaginn 24. október kl. 14:00. Undantekning frá þessu er að þeir sem bjóða sig fram til stjórnar en ná ekki kjöri geta á þinginu boðið sig fram sem varamenn í stjórn.
Til að bjóða sig fram skal skrá sig hér.
Ein lagabreytingartillaga barst og verður lögð fram af lögréttu. Tillagan er svohljóðandi: Að orðalagi í 4. gr. starfsreglna um höfuðblót verði breytt svo að „hið fjórða á sumarsólstöðum“ verði „hið fjórða á þórsdegi í tíundu viku sumars“.
Dagskrá allsherjarþings 2026:
