Það var mikið um að vera hjá okkur í kringum sumarsólstöður en 21.júní voru haldin sumarsólstöðublót víða um land.
25.júní á Þórsdegi í 10. viku sumars var svo Þingblótið okkar haldið á Þingvöllum.
Hér má sjá myndasafn frá blótunum og þökkum við innilega þeim sem tóku myndir.
Ljósmyndir og myndbönd:
Bjarki Sigurðsson
Davíð Davíðsson
Olga Alexandersdóttir Markelova
Styrmir & Heiðdís (www.styrmir-heiddis.com)
Þeba Björt Karlsdóttir
Skrifstofan verður lokuð í Öskjuhlíð í dag og á morgun vegna undirbúnings og frágangs eftir Þingblót.
Það er þó hægt að ná í okkur í síma 861-8633 ef á þarf að halda.
Sjáumst í kvöld á Þingvöllum!
Að venju er opið hús á laugardaginn í hofinu okkar í Öskjuhlíð.
Húsið opnar kl. 14:00 og er opið til kl. 16:00.
Endilega kíkið við í kaffi og spjall.
Að venju þá er opið hús hjá okkur á laugardaginn frá kl. 14:00 – 16:00.
Við bjóðum alla velkomna í hofið okkar í Öskjuhlíð í kaffi og spjall.
Skrifstofa Ásatrúarfélagsins verður lokuð 17.júní.
Við óskum landsmönnum innilega til hamingju með þjóðhátíðardaginn og opnum aftur á fimmtudaginn kl. 13:00.
Sumarsólstöðublót verða haldin víða á landinu 21. júní næstkomandi en 25. júní verður svo Þingblótið okkar haldið á Þingvöllum á Þórsdegi í 10. viku sumars. Hér má sjá lista og lýsingar á dagskránni 21. og 25. júní næstkomandi:
—–
Sumarsólstöðublót fer fram að Múla í Álftafirði sunnudaginn 21. júní og hefst kl. 14:00. Kaffi og meðlæti hjá Guðmundi og Þebu eins og venjulega að blóti loknu. Óvæntur viðburður að því loknu í boði heimamanna. Allir velkomnir.
Baldur Pálsson Freysgoði helgar blótið
—–
Sumarsólstöðublót verður haldið í Ásheimum sunnudaginn 21. júní klukkan 19:00. Pulsur og gos í boði, allir velkomnir og góða skapið í öndvegi.
Árni Sverrisson Hegranesgoði helgar blótið.
—–
Sumarsólstöðublót fer fram í fjörunni í Haukadal í Dýrafirði sunnudaginn 21. júní og hefst kl: 15:00. Öll velkomin til að fagna sólinni, birtunni og sumrinu. Freyr og Freyja verða í aðalhlutverki og við fáum að heyra sögur af þeim systkinum enda gott að huxa til þeirra á þessum tíma með ósk um góða uppskeru til handa mönnum, dýrum og gróðri. Boðið verður upp á kaffi og kleinur að blóti loknu.
Elfar Logi Hannesson Haukadalsgoði helgar blótið.
—–
Sumarsólstöðublót verður helgað við sólúrið í Kjarnaskógi 21. júní kl. 14:00.
Ragnar Elías Ólafsson Þveræingagoði helgar blótið.
—–
Sumarsólstöðublót verður haldið við Síldarminjasafnið á Siglufirði sunnudagskvöldið 21. júní kl. 22:00. Fögnum saman risi sólar sem er lengst á lofti einmitt þennan dag. Öll hjartanlega velkomin.
Sigurður Mar Halldórsson Svínfellingagoði helgar blótið.
—–
Þingblót á Þingvöllum 25. júní kl. 18:00.
Á Þórsdegi í 10. viku sumars verður að venju blótað á Þingvöllum með glæsibrag.
Í þetta skiptið munum við færa okkur aðeins um set á Þingvöllum eða á Valhallaflöt við enda Valhallarvegar (Smellið á mynd til að stækka).
Þar verður safnast saman kl. 17:30 og gengið að Lögbergi í Almannagjá en gönguleiðin er svipað löng og frá gamla staðnum. Athöfnin hefst svo stundvíslega kl. 18:00.
Í kjölfar athafnar verður gengið til baka og slegið til veislu á Valhallarflöt. Þar verður grillað og Bára Grímsdóttir og Chris Foster mæta á svæðið með tónlistaratriði.
Þið eruð að sjálfsögðu öll velkomin að mæta og taka þátt í fögnuðinum!
Allsherjargoði Hilmar Örn Hilmarsson helgar blótið.

Að venju er opið hús hjá okkur á laugardaginn í hofinu í Öskjuhlíð. Húsið opnar kl. 14:00 og er opið til kl. 16:00.
Kíkið endilega við í kaffi og spjall.

Að venju þá er opið hús hjá okkur á morgun laugardag 6. júní frá kl. 14:00 – 16:00.
Við bjóðum alla velkomna í hofið okkar í Öskjuhlíð í kaffi og spjall.

Tvær nýjar bækur voru að berast okkur frá bókaútgáfunni Hyldyr og eru nú til sölu í hofinu ásamt eldri titlum.
Annars vegar er um að ræða bókina Mjölnir og hins vegar bókina Earth Wounds. Hér er smá lýsing á hvorri bók fyrir sig: 
—–
Earth Wounds:
Hér er á ferðinni framsækin bók sem á myndrænan hátt sýnir endursköpuð heiðin kuml á norðurlöndum út frá fornleifafræðilegu samhengi. Allmargar ljósmyndir má finna af leikurunum Kevin Alexandrowicz og Devon Rawlings í hlutverki fólks sem lagt var til hinar hinstu hvílu í kumlum. Inngang rita fornleifafræðingarnir doktor Lezsek Gardela sem er einn fremsti sérfræðingur í fornleifafræði víkingaaldar og Giorgia Sottotetti sem starfar hjá Þjóðminjasafni Íslands.
—–
Mjölnir:
Á víkingaöld var hamar Þórs áberandi og vel þekktur og er vísað til hans oft í fornkvæðum, en einnig má finna rúnaáletranir og þórshamra í fornleifafræðilegu samhengi. Í bókinni Mjölnir er hamarinn skoðaður frá fræðilegu samhengi með þverfaglegri nálgun og rætt er um ýmis dæmi úr sögulegum heimildum. Bókin er skrifuð af þjóðfræðingnum Joseph S. Hopkins, myndskreytt af listakonunni Jacqui Alberts Lund og inngang ritaði fræðimaðurinn doktor Katherine Beard sem útskrifaðist með meistaragráðu í norrænni trú frá Háskóla Íslands árið 2019, en lokaverkefni hennar fólgst í því að rannsaka Mjölni og kortleggja fundarstaði hans.
—–
Við höfum einnig fengið áfyllingu af eldri titlum frá Hyldir og eru eftirfarandi bækur nú til sölu hjá okkur í hofinu:
Earth Wounds
Galdrastafir
Mjölnir
The Galdrabók
The comparative Hávamál
The comparative Sigrdrífumál
The comparative Völuspá
The Younger Futhark

Hægt er að versla bækur og aðra muni á skrifstofutíma milli kl. 13-16 á virkum dögum og á opnu húsi á laugardögum milli kl. 14-16. Verð og aðrar upplýsingar um söluvörur má nálgast í síma 861-8633 á skrifstofutíma.
Við getum einnig sent söluvörur með pósti en til að hefja söluferlið þá er best að senda póst á skrifstofa@asatru.is með upplýsingum um þær vörur sem óskað er eftir ásamt heimilisfangi.
Fyrir áhugasama bókaunnendur utan landsteina þá bendum við á heimsíðu Hyldir, https://www.hyldyr.com/ þar sem hægt er að nálgast áðurnefnda titla í vefverslun.






























































































